Tomb Raider aðdáandi hefur sett heimsmet með stærsta tölvuleikjasafni sem tengist leikjaseríunni, samkvæmt Guinness World Records.
Amy Dyson á nú stærsta safn Tomb Raider-tölvuleikja í heimi, alls 291 eintak. Safnið spannar fjölmargar útgáfur á mismunandi tungumálum og fyrir ólíkar leikjatölvur, þar á meðal Game Boy, PlayStation, Xbox og PC. Samkvæmt tilkynningu frá Guinness á hún jafnvel sömu leikina í mörgum útgáfum.
Áhugi hennar á seríunni hófst snemma.
„Ég byrjaði að spila Tomb Raider um sex ára aldur og fannst heillandi að sjá leik með kvenkyns aðalpersónu sem var sterk og sjálfstæð,“
segir Amy í samtali við Guinness. Hún bætir við að þrautirnar og leikjaupplifunin hafi höfðað sérstaklega til sín á þeim tíma.
Safnið fór að taka á sig mynd síðar, meðal annars eftir að hún kynntist öðrum safnara í gegnum myndband og fékk fyrstu safngripina í afmælisgjöf.
„Þetta byrjaði smátt en vatt fljótt upp á sig,“
segir hún.
Til að fagna 30 ára afmæli Tomb Raider ákvað Amy að reyna við heimsmetið. Hún átti um 100 leiki þegar hún hóf markvisst að safna fleiri eintökum og fór fljótlega fram úr fyrra meti, 215 leikjum, sem spænski safnarinn Alejandro Cambronero Albaladejo setti árið 2017.
Safnið er þó ekki einungis bundið við tölvuleiki. Amy á einnig veggspjöld, fígúrur og aðra safngripi tengda seríunni. Hún hefur jafnframt byggt upp samfélag í kringum áhugann á samfélagsmiðlum.
Að hennar sögn gegna leikirnir einnig mikilvægu hlutverki í daglegu lífi. Hún glímir við taugasjúkdóminn Functional Neurological Disorder, sem getur haft áhrif á hreyfigetu og einbeitingu.
„Tomb Raider hjálpar mér að slaka á og endurstilla hugann þegar mér líður illa,“
segir hún.
Guinness bendir jafnframt á að stærsta safn Tomb Raider-minjagripa í heimi tilheyri spænska safnaranum Rodrigo Martín Santos, með yfir 3.000 hluti, en safn Amy er það stærsta sem einblínir sérstaklega á tölvuleikina sjálfa.
Myndir: guinnessworldrecords.com












