Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) stóð nýverið fyrir námskeiði í rafíþróttalýsingu, svokölluðu „casting“, sem ætlað er þeim sem vilja bæta sig sem lýsendur í rafíþróttum. Á námskeiðinu var farið yfir margvíslega þætti, allt frá undirbúningi og frammistöðu lýsanda til stjórnar sýninga, hlutverks lýsenda og viðtala.
Námskeiðið fór fram í húsnæði Rafmenntar við Stórhöfða 27 í Reykjavík og kostaði 19.900 krónur. Að þessu sinni tóku fimm manns þátt, en samkvæmt Tómasi Jóhannssyni, yfirlýsanda í Counter-Strike hjá RÍSÍ, hefur alltaf verið góð aðsókn að námskeiðinu sem nú fór fram í þriðja sinn.
„Það sem vakti mesta lukku var undirbúningurinn. Námskeiðið er uppbyggt til að undirbúa nýja lýsendur undir útsendingu og allt sem því við kemur,“
segir Tómas í samtali við esports.is.
Aðspurður hvort hann hafi orðið vitni að því að góð lýsing hefði afgerandi áhrif á upplifun þátttakenda eða áhorfenda í æfingum segir hann að þar sé ekki um neina undantekningu að ræða.
„Góður lýsandi getur alltaf sett stóran punkt yfir i-ið í öllum útsendingum, þar er rafíþróttalýsandi enginn undantekning.“
Þrátt fyrir jafna frammistöðu í hópnum að þessu sinni segir Tómas að nokkrir hafi leitað til hans eftir fyrstu útsendingarnar og óskað eftir ábendingum.
„Þeir aðilar voru með allt á hreinu,“
bætir hann við.
Að lokum gaf hann ungu fólki sem dreymir um að verða lýsarar í rafíþróttum hagnýt ráð:
„Ég sjálfur byrjaði á því að taka mig upp og hlusta á mistök. Ég byrjaði að lýsa leikjum á lægra leveli en í efstu deild.
Það er mikilvægt að taka sig smá alvarlega og sjá hvað maður getur.“
Meðfylgjandi eru myndir frá námskeiðum sem RÍSÍ hefur haldið í gegnum tíðina og hafa þau reynst afar vinsæl.
Myndir: Rafíþróttasamband Íslands / Atli Már














