
Íslenski Counter-Strike spilarinn Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson er á leiðinni á stórmótið PGL Astana, en hann keppir þar með bandaríska liðinu Fisher College.
PGL Astana er alþjóðlegt Counter-Strike mót sem fer fram í Astana, höfuðborg Kasakstan, þar sem bestu lið heims etja kappi um verðlaunafé upp á 1,6 milljónir Bandaríkjadala.
Mótið hefst 9. maí og verður eitt af stærri viðburðum vorsins í rafíþróttaheiminum. Þorsteinn, sem er 25 ára gamall, hefur á undanförnum árum skapað sér nafn bæði hér heima og erlendis, en hann lék áður með íslenska liðinu Dusty áður en hann gekk til liðs við Fisher College.
Listi þátttökuliða var opinberaður á HLTV fyrr í dag og er nú endanlegur eftir að Fisher College og suður-ameríska liðið 9z tryggðu sér síðustu sætin í gegnum undankeppnir.
Meðal þeirra liða sem mæta til leiks í Kasakstan eru FURIA frá Brasilíu, Falcons og G2 frá Evrópu, Spirit og PARIVISION frá Rússlandi, HEROIC frá Svíþjóð og The MongolZ frá Mongólíu. Þá má einnig finna lið á borð við MOUZ, Aurora, Monte og fleiri sem öll hafa sýnt sterka takta að undanförnu.
Þetta verður því sannkallað stórmót þar sem sterkustu lið heims mætast og áhugavert verður að fylgjast með frammistöðu Þorsteins og Fisher College á sviðinu.
Mynd: facebook / Dusty



