
StarLadder Budapest Major 2025 fór fram í MVM Dome í Búdapest, einni tæknilega fullkomnustu esports-höll Evrópu, þar sem allt að 20 þúsund áhorfendur geta fylgst með í senn. Aðsóknin var gríðarleg og ljóst að mun fleiri vildu komast að en pláss bauð upp á, enda um seinni CS2 Major ársins að ræða og einn eftirsóttasta titil Counter-Strike senunnar.
Átta af sterkustu liðum heims börðust um 1,25 milljóna dollara verðlaunapott, sem jafngildir um 175 milljónum króna. Þar á meðal voru Team Spirit, FaZe Clan, NAVI, Vitality og The MongolZ, en það var Vitality sem gekk að lokum frá mótinu sem sigurvegari og skrifaði sig rækilega inn í sögubækurnar.
Úrslitaleikurinn markaði tímamót, þar sem í fyrsta sinn var Major-úrslitaleikur spilaður í Best of 5 fyrirkomulagi. Það reyndist Vitality vel, enda sýndi liðið yfirburði sína yfir allt kortasafn Counter-Strike. Eftir tap á Nuke þar sem FaZe mættu af krafti og keyrðu á skriðþunga, tóku Frakkarnir og félagar þeirra algjörlega yfir.
Dust2 var algjör sýnikennsla í stjórn og lestri á leiknum, þar sem Vitality tók FaZe í sundur með hnitmiðuðum T-side spilamennsku og lokaði kortinu 13-3. Inferno varð síðan lykilslagur, þar sem breidd og samheldni Vitality skilaði sér í 13-9 sigri eftir klíníska Banana-stjórn og síendurtekin högg á varnaruppstillingu FaZe.
Þegar Overpass kom upp var ljóst að FaZe stóðu höllum fæti. Vitality refsaði miskunnarlaust fyrir veikleika á B-svæðinu, braut niður varnirnar með hraða og agaðri spilamennsku. FaZe náði aðeins einum CT-hring áður en allt var búið.
William „mezii“ Merriman átti einn sinn besta leik í treyju Vitality og var lykilmaður á mörgum vendipunktum seríunnar, studdur af óstöðvandi ZywOo, yfirveguðum ropz og stjórn apEX. Þegar frönsku stuðningsmennirnir tóku undir La Marseillaise í lokin var ljóst að nýir, eða öllu heldur endurkrýndir, konungar Counter-Strike höfðu tekið við.
Með 3-1 sigri á FaZe tryggði Vitality sér annað Major-meistaratitilinn í röð og varð fyrsta liðið til þess síðan Astralis árið 2019. Níundi stóri titill ársins 2025 staðfesti yfirburði þeirra og setti punkt við eitt sannfærandi Major-mót sem sýndi CS2 í sinni allra skörpustu mynd.
Til gamans má nefna að félagarnir Icenosi og Kassi buðu upp á afar gott coverage frá Búdapest með daglegu IRL-streymi beint frá Major-mótinu, sem hægt er að kynna sér nánar hér.
Mynd: x.com / StarLadder CS2



