Close Menu
    Nýjar fréttir

    Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ

    12.10.2026

    Fjögur lið berjast um sæti í úrslitum ESL Pro League

    10.10.2026

    Nýr skotleikur selst í þrjár milljónir eintaka á aðeins 16 dögum

    10.10.2026

    Ellefu ára keppandi í rafíþróttahópi Japans

    06.10.2026
    1 2 3 … 355 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ
    Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ

    Chef-Jack12.10.2026Uppfært12.10.20262 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ

    Team Vitality tryggði sér meistaratitilinn á ESL Pro League Season 24 í Counter-Strike 2 eftir öruggan 3:0 sigur á MOUZ í úrslitaleiknum sem fram fór í Katowice í Póllandi í gær, sunnudaginn 11. október.

    Úrslitahelgi mótsins fór fram laugardaginn 10. október og sunnudaginn 11. október, þar sem fjögur lið börðust um verðlaunasætin. Vitality hafði betur gegn Aurora Gaming í undanúrslitum á laugardeginum, á meðan MOUZ lagði Team Spirit.

    Vitality hafði yfirhöndina í úrslitaleiknum

    Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ
    Dan „apEX“ Madesclaire, fyrirliði Counter-Strike 2 liðs Team Vitality.

    Úrslitaleikurinn fór fram á sunnudeginum og var leikið þar til annað liðið hafði unnið þrjú kort af fimm mögulegum.

    Vitality byrjaði betur og vann fyrsta kortið, Cache, 13:8. Liðið fylgdi því eftir með 13:7 sigri á Inferno og var því komið í vænlega stöðu.

    MOUZ veitti meiri mótspyrnu á þriðja kortinu, Dust2, og tókst að knýja fram framlengingu. Þar reyndust leikmenn Vitality sterkari, unnu fjórar lotur í röð og tryggðu sér 16:12 sigur.

    Vitality vann því úrslitaleikinn 3:0 og tryggði sér meistaratitilinn án þess að tapa korti.

    Sjáðu það helsta úr úrslitaleiknum

    Hér að neðan má horfa á myndband á YouTube með helstu tilþrifum og spennandi augnablikum úr úrslitaleik Vitality og MOUZ á ESL Pro League Season 24.

    ZywOo fór fyrir liði Vitality

    Franski leikmaðurinn Mathieu „ZywOo“ Herbaut átti stóran þátt í sigri Vitality og var besti leikmaður úrslitaleiksins samkvæmt tölfræði HLTV.

    ZywOo felldi 64 andstæðinga gegn 33 dauðsföllum og lauk leiknum með 1,65 í einkunn samkvæmt matskerfi HLTV.

    Þetta var annar mótssigur Vitality í röð eftir að liðið fagnaði sigri á StarSeries Fall í september.

    Aurora tryggði sér þriðja sætið

    Aurora Gaming og Team Spirit mættust í leik um þriðja sætið á sunnudeginum. Þar hafði Aurora betur, 2:0, og tryggði sér bronsið.

    Vitality stóð því uppi sem sigurvegari ESL Pro League Season 24, MOUZ hafnaði í öðru sæti, Aurora í því þriðja og Team Spirit í fjórða sæti.

    Myndir: skjáskot úr myndbandi

    Tengt efni:

    Fjögur lið berjast um sæti í úrslitum ESL Pro League

    Aurora Gaming MOUZ Team Spirit Team Vitality
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Fjögur lið berjast um sæti í úrslitum ESL Pro League

    10.10.2026

    Stelpurnar rústuðu strákunum

    21.09.2026

    Draumabílar styðja íslensku Counter-Strike senuna

    21.08.2026

    Fyrsta íslenska VRS mótið

    20.08.2026
    Við mælum með

    Frábær frammistaða Íslands í ALGS ENC 2026

    09.08.2026

    Dusty í baráttu um Esports World Cup

    07.08.2026

    Ísland keppir í Apex Nations Cup

    30.07.2026

    Ný rafíþróttaaðstaða á Húsavík

    30.07.2026
    1 2 3 … 11 Next
    Mest lesið
    • Wardogs
      Nýr skotleikur selst í þrjár milljónir eintaka á aðeins 16 dögum
      10.10.2026
    • Fjögur lið berjast um sæti í úrslitum ESL Pro League
      Fjögur lið berjast um sæti í úrslitum ESL Pro League
      10.10.2026
    • Gaming - PC - Lyklaborð / Console
      Ellefu ára keppandi í rafíþróttahópi Japans
      06.10.2026
    • Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ
      Vitality tryggði sér meistaratitilinn með 3:0 sigri á MOUZ
      12.10.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.