Season 2 skotleiksins WARDOGS kom út í dag, 15. október, með fjölmörgum nýjungum og breytingum á spilun. Leikurinn hefur selst í yfir þremur milljónum eintaka frá því að hann kom út í Early Access á Steam í september.
WARDOGS er taktískur fjölspilunarleikur þar sem allt að 100 leikmenn berjast samtímis. Leikurinn er þróaður af BULKHEAD og gefinn út af Team17.
Þrumuveður breytir bardögunum
Ein stærsta nýjungin er breytilegt veðurfar. Nú þurfa leikmenn að takast á við úrhellisrigningu og þrumuveður sem hefur áhrif á bæði skyggni og hljóð.
Þrumur geta meðal annars yfirgnæft fótatak og skapað ný tækifæri til að koma andstæðingum á óvart.
Uppfærslan inniheldur einnig fjögur ný vopn, fjögur farartæki og þrjú ný mannvirki sem leikmenn geta byggt. Þar á meðal eru T-72B3 skriðdreki og Gepard loftvarnarfarartæki.
Breytingar á jafnvægi og spilun
BULKHEAD hefur jafnframt gert umfangsmiklar breytingar á bardagakerfi, framvindu leikmanna og samvinnu innan liða.
Meðal annars eru leikmenn hvattir til að ganga til liðs við Lonestar, bláa fylkingu leiksins, með sérstökum peningaverðlaunum og reynslustigum.
Joe Brammer, framkvæmdastjóri BULKHEAD, segir að leikmenn hafi þegar fundið nýjar leiðir til að spila leikinn sem þróunaraðilar höfðu ekki séð fyrir. Ábendingar þeirra hafi skipt miklu máli við gerð uppfærslunnar.
Leikmaður vann 100.000 dollara
Í tilefni af velgengni leiksins efndi BULKHEAD til myndbandasamkeppni þar sem leikmenn sendu inn myndskeið úr leiknum.
Sigurvegarinn hlaut 100.000 Bandaríkjadali í peningaverðlaun, en það samsvarar rúmlega 12 milljónum íslenskra króna. Aðrir 99 keppendur fengu hver um sig 100.000 dollara í gjaldmiðli leiksins.
WARDOGS Season 2 er nú aðgengileg öllum sem eiga leikinn á Steam.
Myndir: Steam / Wardogs





