Í gærkvöldi endaði meistaramótið Malaysian National Championship í leiknum Heroes of Newerth með sigri Orange eSports og fyrir það fengu þeir 100.000 dollara eða um 13 milljónir íslenskra króna. Orange eSports liðið var aldrei í neinum vandræðum og engin lið ógnaði þeirra sigurför í mótinu sem endaði eins og áður sagði með sigri þeirra Orange eSports, en í öðru sæti urðu HonPortal og fengu 10 þúsund dollara í verðlaun og í það þriðja lenti liðið MUFC eSports sem fengu í verðlaun 3 þúsund dollara.
Mynd af Orange eSports: Team Razer