[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Nýjustu fréttir
    Heim / HRingurinn / Aldrei áður hefur verið jafn mikil skráning á HR-inginn | Myndir af aðstöðunni
    Nýr þáttur alla miðvikudaga

    Aldrei áður hefur verið jafn mikil skráning á HR-inginn | Myndir af aðstöðunni

    Það má með sanni segja að lanmótið HR-ingurinn er fagnað af leikjasamfélaginu en 56 lið eru nú skráð á lanmótið.

    Meðfylgjandi myndir er af aðstöðunni, en allir verða á annari hæðinni í byggingunni sem er kölluð sólin, en Starcraft 2 fólkið verður á þriðju hæðinni.

    Liðin sem skráð eru á lanmótið:

    13x „lið“ skráð í starcraft 2, en SC2 er einstaklings keppni
    23x lið í League of Legends
    9x lið í Counter Strike Source
    11x lið í Counter Strike 1.6

    „Ekki eru öll liðin fullskipuð en um 250 einstaklingar eru skráðir, aldrei áður hefur verið jafn mikil skráning á HR-inginn“, sagði Stefán einn af admins mótsins í samtali við eSports.is.

    „Það er allt farið á fullt skrið og er mikill undurbúningur byrjaður hjá okkur“, sagði Stefán að lokum og var þar með rokinn í burtu enda í nógu að snúast.

    eSports.is kemur til með að fylgjast vel með mótinu og flytja ykkur fréttir, myndir, úrslit og fleira.

    Heimasíða lanmótsins: www.hringurinn.net

    Myndir: Aðsendar

    Um Chef-Jack

    Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: esports@esports.is

    Svara

    Netfang verður ekki birt

    x

    Check Also

    Starfcraft

    HRingurinn: Cluster sigraði StarCraft mótið

    Nú stendur yfir lanmótið HRingurinn ...