Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Í gærkvöldi endaði meistaramótið Malaysian National Championship í leiknum Heroes of Newerth með sigri Orange eSports og fyrir það fengu þeir 100.000 dollara eða um 13 milljónir íslenskra króna.  Orange eSports liðið var aldrei í neinum vandræðum og engin lið ógnaði þeirra sigurför í mótinu sem endaði eins og áður sagði með sigri þeirra Orange eSports, en í öðru sæti urðu HonPortal og fengu 10 þúsund dollara í verðlaun og í það þriðja lenti liðið MUFC eSports sem fengu í verðlaun 3 þúsund dollara. Mynd af Orange eSports: Team Razer

Lesa meira

Með nýju ári þá er alltaf gott að fara yfir hlutina og sjá hvað má bæta og laga. Breyting á comment kerfi við fréttir Til að byrja með þá hefur ávallt verið hægt að skrifa athugasemdir við fréttir og hefur comment kerfi facebook verið notað frá því að nýi vefurinn fór í loftið í byrjun árs 2012, en ástæðan fyrir því að það kerfi var notað var að notendur töluðu um að þeir hefðu ekki áhuga á að skrá sig og þar sem fjölmargir eru á facebook þá var farið þá leið að hafa facebook comment kerfi.  Nú er eins…

Lesa meira

Nýr íslenskur Zombie server fyrir leikinn Counter Strike:Source hefur verið settur upp.  Það er eSports.is notandinn Sinx sem á veg og vanda að uppsetningu á servernum.  „Það gæti tekið smá stund að downloada öllu zombie stuffinu, en ekkert lengur en 1-2 mín“, segir Sinx á spjallinu um leið og hann kynnti serverinn. Viltu koma einhverju á framfæri? Hvetjum alla til að nota spjallið okkar til að tilkynna og segja frá einhverju skemmtilegu sem er að gerast í íslenska leikjasamfélaginu og við komum til með að vekja athygli á því með að skrifa frétt, tilkynna bæði á twitter og eins á…

Lesa meira

Greint var frá í byrjun árs að eSports.is hefur sett af stað Youtube rás og óskað eftir gömlum og/eða íslenskum gaming myndböndum.  Fjölmargir hafa haft samband við eSports.is og gefið leyfi á að birta myndböndin sín sem verða birt hér á næstu dögum og vikum. Fyrstu í röðinni er spilarinn Bunzi í League of legends og eins með nickið Litla í leiknum World of Warcraft, en hann sýnir hér snilldar takta í leikjunum og fyrsta myndbandið ( League of legends ) hér að neðan náði ágætum vinsældum á reddit og þar fyrir neðan eru myndbönd í leiknum World of Warcraft…

Lesa meira

Þá er komið að undanúrslitinni í Counter Strike:Source online mótinu og eftir standa liðin Suits, Team flottir, SHOCKWAVE og WhiteTrash. Deadline er 6. janúar 2013 og þau lið sem ekki spila fyrir það fá default loss.  Veto7 Bo3 (d2, inf, nuke, tusc, seas, strike, train) liðin skiptast á að neita tveimur möppum á mann og velja svo sitthvort mappið, neðra liðið byrjar, segir admin mótsins kruzer á spjallinu, en hægt er að lesa nánar með því að smella hér.

Lesa meira

Eins og mörgum er kunnugt um þá var eSports.is með eitt stærsta downloadsvæði fyrir íslenska tölvuleikjaspilara þar sem hægt var að downloada allt sem tengdist tölvuleiki og myndbönd, en í byrjun árs 2012 var downloadsvæðið lagt niður. Eitt af því sem margir spilarar söknuðu sem mest, þ.e. miðað við þann fjölda tölvupósta frá notendum voru myndböndin sem að íslenskir tölvuleikjaspilarar gerðu sem sýndu snilldartakta hjá hundruðum spilurum. Nú hefur eSports.is stofnað Youtube rás þar sem gömlum sem nýjum myndböndum verður uploadað inn á svo hægt yrði að hafa öll myndböndin á einum stað og verður hvert myndband vel merkt þeim…

Lesa meira

Það er nú ekki á hverjum segi sem að samtök í fjölspilunarleiki er stofnað af íslendingi, en margir hverjir þekkja Counter Strike 1.6 spilarann Jolli sem nú stendur í fullum undirbúningi að byggja upp samtök sem kalla sig Northern Eagles. Jolli er ekki einn sem stofnaði Northern Eagles heldur hefur hann Paulster félaga sinn til halds og traust, en saman stofnuðu þeir samtökin í september síðastliðinn og leita nú af meðlimum eða öllu heldur liðum á háu plani sem stefna á stóru mótin. Í dag eru Northern Eagles með lið í leikjunum FIFA 13 1on1 og 3on3, Counter-Strike: Global Offensive,…

Lesa meira