Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
1. febrúar árið 2008 opnaði eSports.is formlega og í dag 1. febrúar 2013 er þá vefurinn orðinn 5 ára. Það hefur verið mikil breyting á vefnum á þessum árum, en það má segja að vefurinn hefur náð þessum aldri vegna þess að ég aka Chef-Jack hef mikinn áhuga á að skrifa og fjalla um íslenska leikjasamfélag í heild sinni og það meira að segja í öllum leikjum þrátt fyrir að ég sjálfur spila ekki nema örfáa leiki, en þá hef ég alltaf leitast eftir þekkingu á tiltekna leik osfr. Frá því að eSports.is opnaði þá hafa fjölmargar tölvuleikjaheimasíður verið opnaðar…
Fyrsti leikur íslenska Battlefield 3 landsliðsins verður á sunnudaginn 3. febrúar næstkomandi klukkan 19:30 á íslenskum tíma, en þar keppir það við ungverjaland í NationsCup XVI hjá Clanbase. Keppt verður í 8vs8 Conquest og spilað verður í Caspian Border og Grand Baazar. „Lið Ungverja er skipað af einu besta infantry liði heims (ROCK.alienware) þannig Grand Baazar verður gríðarlega erfitt map, en mér skilst þeir hafi ekki eins sterkt „airforce“ þannig við eigum mikla möguleika í Caspian Border. Við verðum bara að vona það besta“, sagði landsliðs captain d0ct0r_who á spjallinu.
Team Frostbite Iceland hefur sett upp nýjan server fyrir leikinn DAYZ á ip tölunni: 159.253.149.54:3374 Einnig ætlar TF Iceland að bjóða almenning inn á IceEz TeamSpeak Serverinn þar sem hægt er að fá sína eigin channel ofl. Nánari upplýsingar um DAYZ serverinn og IceEz TeamSpeak er hægt að lesa með því að smella hér.
Íslenska Battlefield 3 landsliðið er að hefja landsliðakeppnina NationsCup XVI á ClanBase en keppt er í 8vs8 Conquest. Nánari umfjöllun á spjallinu, en þar fer landsliðs captain d0ct0r_who yfir stöðuna.
Á spjallinu auglýsir íslenska föruneytið (A) Tarren Mill EU eftir spilurum í leiknum World of Warcraft, en umsækjendur þurfa að vera skemmtilegir og hafa gaman af því að spila heroics, pvp, challenge modes, raids, LFR, whatever með öðrum íslendingum. „Einnig spilum við aðra leiki saman af og til eins og League of Legends“, segir Beejayz á spjallinu en nánari upplýsingar er hægt að lesa með því að smella hér.
Nú styttist í að íslenski tölvuleikjaframleiðandinn CCP opni fyrir spilun á nýjustu afurð sinni, fjölspilunarleiknum DUST 514. Sem kunnugt er verður leikurinn aðeins fáanlegur á PlayStation 3 leikjatölvunni og það gjaldfrjálst, en þetta kemur fram á fréttavefnum visir.is. Svokölluð Beta-útgáfa af DUST 514 fer í loftið þann 22. janúar næstkomandi. Síðustu ár hefur CCP unnið að þróun tölvuleiksins en hann markar að mörgu leyti tímamót í leikjasögunni. Síðustu mánuði hefur leikurinn verið í lokaðri spilun, nú er komið að því að hefja opna prufukeyrslu. Á dögunum var DUST 514, sem er fyrstu persónu skotleikur, tengdur við fjölspilunarleik CCP, EVE Online,…
Strákarnir í Draazil halda úti hressandi og um leið sjokkerandi youtube rás þar sem þeir ræða um tölvuleiki og auðvitað sýna viðbrögð í hryllings tölvuleikjuunum og öskra eins og enginn sé morgundagurinn. Núna hafa þeir sett saman myndband sem er samansafn af bestu hræðsluópunum úr hinum og þessum myndböndum, sjón er sögu ríkari: Facebook síða Draazil
„Það er orðið fámennt hjá okkur eftir að um 50-60 meðlimum var hent út fyrir að vera inactive“, segir captain Hjorleifsson á spjallinu og ræðir þar um clanið Team Frostbite Iceland sem að íslenska leikjasamfélagsins IceEz gekk til liðs við í nóvember 2012. „Við erum að leita af +18 spilurum sem spila eitthvað á virkum dögum og um helgar [yfirleitt erum við að spila milli ca 19:30 til 00:00], vera með mic fyrir TeamSpeak 3“, þetta og fleiri upplýsingar er hægt að lesa á spjallinu með því að smella hér. Mynd: Skjáskot af meðlimaskrá á heimasíðu teamfrostbite.com
Úrslitaleikur í Counter Strike:Source online mótinu var haldin í kvöld [7. janúar 2013], en þar kepptu Shockwave vs Ten5ion og keppnisfyrirkomulagið var Bo3. 21 lið voru skráð í mótið sem hófst 18. desember 2012 og þessi skráning kom mörgum á óvart enda ekki búist við svo mörgum liðum í mótið. Að meðaltali voru um 35 manns sem horfðu á úrslitaleikinn og í kringum 20 css spilarar voru samankomin á mumble að hlusta á ruglið í hverjum öðrum sem kepptust við að setja út á allt og alla, en þó kom hrós inn á milli. Fyrst var mappið Season spilað og…
Þá er stóra stundin runnin upp en úrslitaleikur hjá liðunum Shockwave og Ten5ion í Counter Strike:Source online mótinu verður í kvöld mánudaginn 7. janúar 2013 klukkan 21°° og keppnisfyrirkomulagið verður alveg eins og var í undanúrslitunum. Lineup hjá Shockwave: SKEVO TMZY CAZT GKR HEJHEJ HUNDENE Lineup hjá Ten5ion: andrehh reynz1 skipid peter Capping Það má vænta hörku úrslitaleik og ekkert verður gefið eftir enda hér um að ræða einum af þeim íslensku elite liðunum. SourceTV er: connect 194.105.226.115:27021 Tölvuvirkni ætlar að gefa vinningsliðinu 10 þúsund í beinhörðum peningum og kunnum við Tölvuvirkni bestu þakkir fyrir.
