Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Battlefield 3 spilarinn Muffin-King hefur verið mjög virkur við að gera vídeó úr leiknum og nú nýverið uploadaði hann myndbandi inn á youtube sem hann kallar „BF3 Live Commentary (Coffee editon!)“ og má heyra að hann hefur fengið sér aðeins of mikið af kaffi 🙂 „Haha, Kaffi er gott 😀 ég hellti upp á svona rúmlega 800 ml af kaffi og áður en ég vissi af hafði ég drukkið það allt á meðan ég var að leika mér í Myndvinnsluforritinu Sony Vegas. Ákvað þá að spila BF3 og sjá hvernig það væri. :P“, sagði Muffin-King á spjallinu aðspurður um hvað…
Það var fámennt en góðmennt á Team Fortress 2 hittingnum í kvöld og var ekki annað að sjá en spilarar skemmtu sér konunglega, tja kannski fyrir utan hjá spilaranum Skjálfa-Leiðindi, en hann var hreinlega lagður í einelti af fréttamanni eSports.is eins og sjá má á meðfylgjandi myndum 🙂 Hvetjum alla þá sem vilja fylgjast með TF2 og íslenskum viðburðum að joina Steam grúppuna okkar hér.
Núna 21. ágúst næstkomandi kemur tölvuleikurinn Counter-Strike: Global Offensive út stýrikerfunum Microsoft Windows, Mac OS X, Xbox 360 og PlayStation 3. Í dag var gerð stærsta uppfærsla á leiknum hingað til á beta útgáfunni og má lesa nánar um hana hér. „Vel, en ég ætla skipta yfir þegar hann kemur út“ sagði íslenski Counter Strike:Source spilarinn Cast í samtali við eSports.is aðspurður um hvernig honum líkar beta útgáfan af leiknum og hvort hann ætlar að skipta alfarið yfir. Hér að neðan er gameplay myndband af CS:GO, en þess ber að geta að leikurinn hefur breyst mikið síðan þetta myndband kom…
HR-ingurinn, 200 manna tölvuleikjamót, fer fram í Háskólanum í Reykjavík um helgina sem ber heitið HR-ingurinn og er það árlegt tölvuleikjamót skipulagt af Tvíund nemendafélagi tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík. 200 manns eru mættir til að etja kappi í League of Legends, Counter Strike, Starcraft II og fleiri leikjum. Til mikils er að vinna en verðlaun mótsins eru metin á yfir hálfa milljón, segir í fréttatilkynningu frá Tvíund. Mótið nær hámarki í dag, laugardaginn 11. ágúst en úrslitakeppni hefst síðan á morgun. Húsið er opið öllum en hægt er að koma og horfa á leikina varpað á stóru tjaldi. CCP verður…
Allt komið í full 130 manns eru mættir til að keppa í leikjunum Counter Strike 1.6, League of Legends og Starcraft 2 á lanmóti HR-ings og er góð stemming í húsinu. Keppni á fyrsta degi lauk í gærkvöldi klukkan 00:00 og hófst aftur núna klukkan 12:00 á hádegi. „Sýnt verður frá League of Legends og Starcraft 2 streamum í fyrirlestrasölum í Háskólanum í Reykjavík, sjoppa á svæðinu, Dust 514 verður spilanlegur á PS3 vélum frá CCP og Senu á fyrstu hæðinni og Red Bull verður með kynningu, allt þetta á Laugardeginum“, sagði Stefán einn af admin´s í samtali við eSports.is.…
Á meðfylgjandi vefslóðum er hægt að fylgjast með live stream frá League of Legends og Starcraft 2 á lanmóti HR-ings: League of Legends: www.twitch.tv/hringurinnlol Starcraft 2: www.twitch.tv/hringurinnsc2
Það er gaman að sjá hvað spjallið hér á esports.is hefur tekið gott kipp síðastliðna daga og greinilegt að notendur eru að koma úr sumarfríi, skólinn á næsta leiti og ekki má gleyma lanmótinu sem haldið verður nú um helgina 10.-12. ágúst 2012. www.esports.is/forums
Það er alltaf spenningur að vita hvað er í verðlaun á lanmótum, en hér að neðan er hægt að sjá hvað er í verðlaun hjá hverjum leik fyrir sig. Aðeins peningar verðlaun eru í League of legends því að þeir borga fyrir það með skráningargjaldinu sínu, en það á allt eftir að koma í ljós hversu há þau eru og fer það eftir þátttöku. Vinningar í League of legends Leikjaheyrnatól frá Nýherja Peningaverðlaunin Gjafabréf í Kísildal ( 1.2.3 sætin og eru 10k, 5k, 3k) Riot points Bíómiðar Gjafabréf frá Dominos Mountain Dew Vinningar í Starcraft Razer mús Gjafabréf frá Kísildal…
Undirbúningur í fullum gangi Þau slæmu tíðindi er að öll liðin úr Counter Strike Source samfélaginu hafa hætt við þátttöku á lanmóti HR-ingsins. „Source samfélagið beilaði á lanmótinu og þess vegna verður ekki CSS mót, en nokkur lið tilkynntu okkur það að þau væru að draga sig úr keppni og á endanum drógu öll lið sig úr keppni“, sagði Stefán einn af admin´s lanmótsins í samtali við eSports.is. Mynd af facebook síðu lanmótsins.
Nú er allt komið á fullt í undirbúning fyrir lanmótið HR-ingurinn 2012 en mótið verður haldið nú um helgina 10.-12. ágúst í Háskólanum í Reykjavík sem er á vegum nemendafélagsins Tvíundar. Meðfylgjandi eru myndir frá undirbúningnum. Myndir frá facebook síðu HR-ings.
