Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Strákarnir í Hetjuklúbbnum sem er eitt elsta og langlífasta íslenska guildið í World of Warcraft leitar nú af spilurum fyrir MoP. „Ertu geðveikt góður spilari en hefur ekki tíma til að raida hardcore? Langar þig í eitt stöðugasta og langlífasta wow guild á Íslandi? Viltu afslappað andrúmsloft og frábæran félagsskap?“, segir Hetjuklúbburinn á spjallinu og bendir á að áhugasamir geta haft samband á heimsíðu þeirra. Recruit myndband Hetjuklúbbsins:
Íslenska Battlefield 3 Icelandz Elitez Gaming samfélagið stækkar og stækkar en nú eru komnir 55 meðlimir og um 40 sem eru active daglega, en þetta kemur fram á spjallinu sem að Hjorleifsson stofnandi hópsins póstar. Enn er pláss fyrir fleiri meðlimi og er hægt að lesa nánar um Icelandz Elitez Gaming með því að smella hér.
Íslenska Team Fortress 2 ( TF2 ) samfélagið byrjaði með hitting í byrjun ágúst síðastliðin og hefur gengið mjög vel og hafa fjölmargir spilað á hittingum. Þessi uppákoma hefur verið einu sinni í viku, þ.e. á laugardögum og hefur eSports.is fengið nokkrar óskir um að fjölga þeim í tvisvar í viku og þá einnig á virkum degi. Team Fortress 2 hittingurinn er núna á laugardögum og á miðvikudögum klukkan 22°° líkt og venjulega. Til að láta minna þig á hittinginn, þá hvetjum við ykkur til að joina TF2 Steam grúppuna hér. Hittingurinn er í boði Símans:
Bandaríski tölvuleikjaframleiðandinn Valve tilkynnti um helgina að uppfærð útgáfa af tölvuleiknum Half-Life væri væntanlega í þessum mánuði. Síðustu átta ár hafa aðdáendur Half-Life unnið að uppfærslunni en Valve gaf út sérstök forrit sem einstaklingar gátu notað til að endurforrita leikinn, en frá þessu er greint frá á fréttavefnum visir.is. Half-Life, sem er fystu persónu skotleikur, kom út í nóvember árið 1998 en útgáfa hans er sögð hafa markað vatnaskil í tölvuleikjaiðnaðinum í Bandaríkjunum. Vinsældir Half-Life voru gríðarlegar og hefur hann selst í tugmilljónum eintaka. Uppfærslan er kölluð Black Mesa. Saga, graffík og eðlisfræði tölvuleikjarins hefur verið uppfærð en með uppfærslunni…
Íslenski Call of Duty og Team Fortress 2 spilarinn Gunnsi hefur heldur betur náð góðum tökum á graffík og kynningarmyndböndum. Gunnsi hefur spilað tölvuleiki til fjölda ára og hefur spilað með clönum spite gaming, sway svo eitthvað sé nefnt. Youtube rásirnar hans hafa gengið vel og fékk meðal annars 1000 subscribers á rás sem heitir razerediting, en hann seldi rásina fyrir nokkru. „Fékk alveg ógeð af CoD og byrjaði að gera graffík verk í photoshop, en ég hætti á youtube stuttu eftir það í mánuð og seldi channelið bjó svo til nýtt GunnarEdits og er núna búinn að vinna mér…
Í kvöld keppir íslenska Battlefield 3 landsliðið við Serbía í online mótinu PSGN: 2012 Euro Cup mótinu. Smá breyting hefur verið á lineup hjá landsliðinu en GustiGitar kemur í staðinn fyrir Muffin-King, þannig að landsliðið er skipað eftirfarandi: d0ct0r (Captain) Y4le Fen Muffin-King PBAsydney MerCury
Það er nóg um að vera framundan hjá Team Fortress 2 claninu Skjálfti sem samanstendur af nokkrum Simnet admins og félögum þeirra, en nú stefna þeir á tvö online mót, þ.e. ETF2L og Highlander. ETF2L hefst 16. september og eru þeir félagar skráðir í Div 6 sem er lægsta deildin; „en við komum sennilega upp í div 5, erum búinn að fá tvo div 3 playera“, segir Logie á spjallinu, en hann er einn af meðlimum í Skjálfta claninu. Highlander mótið hefst einnig í september og keppnisfyrirkomulag er 9vs9 og einn af hvor class. eSports.is kemur að sjálfsu til með…
Nú um helgina stendur yfir i-seríu lanmótið í Bretlandi og er þetta í 46. skiptið sem það er haldið. Keppt er í fjölmörgum leikjum; „Ef ég heyrði rétt þá er TF2 stærsti hluturinn þarna“, segir Durrwwp á spjallinu og bendir á vanillaTV þar sem yfir 2 milljón áhorf, en það eru félagar okkar á vanillatf2.org sem eiga veg og vanda að útsendingunni. Fylgist vel með TF2 spjallinu hér. Meðfylgjandi myndband sýnir á bakvið tjöldin á vanillaTV: Mynd: Skjáskot af myndbandi á bakvið tjöldin á vanillaTV.
Team Fortress 2 hittingur verður í kvöld laugardag 25. ágúst klukkan 22 líkt og venjulega. Til að láta minna þig þig á hittinginn, þá hvetjum við ykkur til að joina TF2 Steam grúppuna hér.
Með tilkomu nýja Guild wars 2 ( GW2 ) leiknum, þá er búið að stofna alveg sér spjallsvæði fyrir leikinn, en hægt er að nálgast spjallið hér. Munið að til þess að efla íslenska GW2 samfélagið þá er ein besta leiðin að vera sýnilegur á opnu spjalli 🙂
