Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Counter Strike 1.6 (Cs 1.6) spilararnir Jolli og Johnny hafa sett af stað online mót í Cs 1.6 og er hægt að skrá lið á vefsíðunni wix.com, en þetta kemur fram á Huga.is/hl. Mótið kemur til með að heita „Icelandic CS league“ og stefnan er að hafa einn riðil með 8 liðum og komast 4 lið upp í brackets, en fleiri lið í mótið er tekið fagnandi. Við berum frekari fréttir þegar þær berast.

Lesa meira

Guild Wars 2 fyrir PC er væntanlegur 30. júní 2012 og hefur Íslenska Guild Wars 2 samfélagið verið að undirbúa sig fyrir herlegheitin.  Kosning var sett af stað á Íslensku Guild Wars facebook grúppunni og fékk Far Shiverpeak serverinn flest stig. Myndband frá beta útgáfunni: Forsíðumynd: GW2-Íslendingar Skjáskot af kosningu. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.

Lesa meira

Íslenska Battlefield 3 liðið Catalyst Gaming (cG) er komið í sem finals í online mótinu Spring cup 2012 eftir sigur þeirra við liðið Massive Rampage (MR) í gær, en keppt var í möppunum Tehran Highway og Seine Crossing. „Notuðumst við nýja tactic í Tehran í þetta skiptið. Vill helst ekki segja of mikið hvernig það spilaði út fyrir sig en vorum með 3 í tank og 5 í APC.  Snérist þetta bara um að reyna ná A og C í byrjun og allt gekk vel!  Strákarnir í Infantry deildinni stóðu sig mjög vel og við í farartækjunum vorum alltaf á…

Lesa meira

„Serverinn fylltist af Íslendingum á tímabili“, sagði d0ct0r_who á spjallinu um eSports.is hittinginn í Battlefield 3 síðastliðinn sunnudag. „Ég er að íhuga að bæta við fleiri Rcon notendum þar sem það eru bara tveir eins og er en hefur ekki verið vandamál hingað til svo ég viti af :)“, segir Desidius admins á TEK (Tölvutek) servernum á spjallinu og hvetur alla þá sem hafa áhuga að hafa samband við sig, en hægt er að senda skilaboð á kappann frá prófíl hans hér. „Það verður standard að hittast á sunnudögum kl 20:00 og taka nokkur round“, segir Muffin-King á spjallinu aðspurður…

Lesa meira

Grissi kláraði Diablo 3 í gærmorgun, en það eru 4 difficult level í diablo 3 – Normal – Nightmare – Hell – Inferno. Inferno er samt mun erfiðara en allt annað sem er á undan, segir Grissi í samtali við eSports.is.  Grissi ættu margir hverjir að þekkja sem hafa fylgst vel með elite grúppunni Mod.is hér á árum áður, en hann er einn af 4 aðilum sem stofnaði þá síðu og hélt uppi mod.is. Hinir voru Desidius, The-Sage og Yu-chan. Grissi er 25 ára spilari og hefur spilað meðal annars leikina Day of defeat, Natural selection og Starcraft brood-war og…

Lesa meira

Það verður nú að segjast að þetta myndband er með þeim betri Battlefield 3 myndböndunum, en hér fer listamaður á kostum og fyrirmyndin er hermaðurinn sem allir BF3 spilarar ættu nú að þekkja, sem hann teiknar og notar einungis með salt. Sjón er sögu ríkari. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.

Lesa meira

Í kvöld keppti Counter Strike:Source liðið sUpEr sEriOUs við VeryGames í EM Season X  mótinu, en keppt var mappinu de_tuscan. „Náðum 6 rounds í fyrri og það voru allaveganna 3, 1on1s sem þeir náðu að vinna og eitt 1on2 sem apex tók í last round.  Í fyrsta terr roundinu hjá okkur tók andrehh nettan 3 man og endaði í 1on1 á móti nbk sem átti 50 hp, nbk kemur labbandi út með eitt skot eftir í uspinu sinni og one shottar hann beint í smettið og svo tóku þeir bara rest, enda eru þeir miklu meira skipulagðri og vita alveg…

Lesa meira

Í kvöld (sun. 20 maí) keppir Counter Strike:Source liðið sUpEr sEriOUs við hið fræga lið VeryGames í EM Season X  mótinu.  Keppt verður í mappinu de_tuscan og hefst leikurinn klukkan 19:00 á íslenskum tíma. „Þetta verður mjög erfiður leikur allavegana og erum ekki jafn æfðir og við hefðum viljað vera en þýskararnir eru uppteknir með liðið sitt og hafa ekki mikinn tíma til að æfa fyrir þetta“, sagði CaPPiNg! í samtali við eSports.is Lienup hjá sUpEr sEriOUs: Capping Skipid aNdrehh an.di wNe Lineup hjá VeryGames: kennyS Ex6tenz NBK RpK apeX SourceTV: bcast05.blank-TV.de:50100 Stream: www.hiscoretv.com

Lesa meira