Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Þá er Counter Strike 1.6 mótið hafið og birti Biggzterinn mótshaldari riðlana í nótt, en fjögur efstu liðin komast upp úr hvorum riðli og spilað verður bo1 í riðli. Þrettán lið eru skráð í keppnina og eftirfarandi eru riðlarnir Riðill 1. Celph ninjas shondi army shock losn Riðill 2 dbsc CLA Hogwarts zP stussy igcrew su7 Mapcycle eru þessu hefbundnu eða dust2, inferno, nuke, tuscan og train. Neitað tveimur möppum og það sem stendur eftir er spilað, en neðra seed byrjar að neita. Nánari upplýsingar um mótið hér.
Í gærkvöldi fór fram Íslandsmótið Team Monobattles í leiknum StarCraft 2 og sigruðu félagarnir í GEGT1337. Úrslit urðu eftirfarandi: 1. sæti: GEGT1337 2. sæti: Ótamdir Fákar 3. sæti: nWa Heimild
Ástþór vekur athygli á movie spjallinu á klippu sem hann gerði í leiknum Call of Duty:MW2 sem hann kallar CROWNNZ. Ástþór gerði þessa klippu fyrir rússneskan félaga sinn og er þetta fyrsta PC editering hans, glæsilegt framtak. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
Nú er allt komið á fullt í Starcraft 2 Íslandsmótinu Team Monobattles, eins og Sennap bendir réttilega á spjallinu. Fylgist vel með og eins er hægt að skoða Brackets hér.
Skemmtilegt myndband af Starcraft spilurum sem taka LMFAO Sexy and I Know It Parody taktana og kalla það Nerd Alert – Nerdy and I Know It.
„Ef þú ert einmanna í kvöld þá koma til greina tveir möguleikar. 1) Hringja í heita konu í síma: 905-2000 2) Logga inn fyrir LFR kl 20:30“, en þetta kemur fram á vef Hetjuklúbbsins. Hetjuklúbburinn er íslenskt World of Warcraft guild með langa sögu, stöðugan kjarna og öfluga spilara, en þeir hafa nú auglýst í Fréttablaðinu í dag að föstudagsraid-ið verður á sínum stað klukkan 20:30 og hvetja félagsmenn til að mæta. Skemmtilegur vínkill hjá þeim að auglýsa í Fréttablaðinu. Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
Þá er kosningin um nördalegasta flúrið hafin á facebook síðu Nörd Norðursins og bárust hvorki meira né minna en 57 flúr í keppnina frá 38 þátttakendum, glæsilegt það. Núna þurfa keppendur að fá sem flest like á myndina sína og það flúr sem er með flest like þann kl 23:59 þann 29. mars sigrar keppnina. Í 1. sæti er 25.000 kr. inneign upp í flúr hjá Bleksmiðjunni. Mynd í 2. sæti er í vali dómnefndar sem samanstendur af Nörd Norðursins starfsmönnum og Bleksmiðjunnar og fær sigurvegarinn 10.000 kr. inneign upp í flúr hjá Bleksmiðjunni. Smellið hér til að skoða herlegheitin.…
MLG winter championship í leiknum StarCraft 2 verður í beinni á stórum skjá í HD útsendingu á Classic þessa helgina. Fyrsta útsending byrjar í kvöld (23. mars) klukkan 21:00. Facebook event hér. Félagarnir á GEGT eru búnir að hanna form til að veðja á MLG winter. Allar nánari upplýsingar á facebook síðu íslenska Starcraft 2 samfélagsins.
Eftir að nýja útlitið og spjallið kom á eSports.is hafa nokkrir notendur haft samband við stjórnendur og spurst fyrir um hvernig hinir og þessi fítsuar virkar og hvernig hægt væri að koma fréttum og ábendingum til eSports.is omfl.. Búið er að setja upp myndaútskýringu á spjallið og vonast er til að notendur verði virkari og stofni til umræðu á spjallinu. Skoðið útskýringarnar hér.
Laugardaginn 24. mars kl 18:00 næstkomandi verður Íslandsmót í Team Monobattles í leiknum StarCraft 2. „Skráning gengur sæmilega, sjö lið hafa skráð sig. Síðasti séns að skrá sig verður kl 18°° á laugardaginn (24. mars 2012). Ég var að hugsa um að hafa formattið annaðhvort double elimination BO3 eða að láta alla spila við alla BO3 í deild, en þetta fer eftir því hversu margir skrá sig“, sagði Hannes mótshaldari í samtali við eSports.is aðspurður um hvernig gengur með skráninguna og skipulagið á mótinu. Möppin sem spilað verður eru BX Team Monobattles möppin, t.d. er hægt að leita að „BX…
