Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Undanfarna mánuði hafa bestu lið landsins att kappi í leikjunum tveimur til að komast svona langt. Í League of Legends voru FH (sem áður hét Frozt) efstir í deildinni með 11 sigra og 1 tap. Á eftir þeim koma Dusty​ með 9 sigra og 3 töp. Bæði liðin komust frekar auðveldlega í gegnum undanúrslitin gegn KINGS og Old Dogs. Á bak við tjöldin hjá Dusty https://youtu.be/wKko0Q7_v2s Í Counter-Strike var HaFiÐ efst í deildinni með 12 sigra og 0 töp. Á eftir þeim, eftir harða baráttu við Tropadeleet og KR, koma Fylkir með 5 sigra og 7 töp. Bæði liðin sigruðu…

Lesa meira

Síðastliðna helgi var haldin einn stærsti rafíþróttaviðburður Íslands sem fram fór í Laugardalshöllinni. Þar var keppt í leikjunum Fortnite, Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO) og League of Legends (LoL) um titilinn Rafíþróttameistari Reykjavíkurleikanna. Fyrst var haldin undankeppni helgina áður og úrslitin voru spiluð uppi á sviði í Laugardalshöllinni fyrir framan áhorfendur. Úrslit Í League of Legends var það „Glanni Tæpur“ sem sigruðu og vann liðið sér inn keppnisrétt á “Nordic Championship” á Dreamhack í febrúar, en Dreamhack er stærsti LAN viðburður Evrópu. Hart var barist um fyrsta sætið í CS:GO og að endingu var það Hafið sem sigraði. Í Fortnite var…

Lesa meira

Rafíþróttasamtök Íslands í samstarfi við Íþróttabandalag Reykjavíkur kynna með stolti stærsta rafíþróttaviðburð Íslands frá upphafi. Keppnin verður haldin í Laugardalshöll dagana 26. og 27. janúar 2019 en þar munu bestu lið landsins í Fortnite, Counter-Strike og League of Legends keppa um hver getur kallað sig rafíþróttameistara Reykjavíkurleikanna í fyrsta sinn. Úrslitin verða spiluð uppi á sviði í Laugardalshöllinni fyrir framan áhorfendur. Undanúrslit verða online, helgina 19. – 20. janúar næstkomandi. Þar að auki mun sigurvegari í League of Legends móti Reykjavíkurleikanna vinna sér inn keppnisrétt á “Nordic Championship” á Dreamhack í febrúar, en Dreamhack er stærsti LAN viðburður Evrópu. Nóg…

Lesa meira

Íslenskir Dota 2 spilarar sjá um skemmtilegt twitch stream með íslenskt coverage á stórmótinu The International. Þetta mót er haldið árlega og er stærsta Dota 2 mót í heimi og hvorki meira né minna en 24 milljónir dala í verðlaunafé. Íslenska streamið hefur gengið mjög vel og er virkilega gaman að fylgjast með. Í settið koma einnig gestir og lýsa sumum leikjum sem gefur fjölbreytta upplifun á mótinu fyrir áhorfendur. Hér er linkur á streamið, en leikir spilast oftast seinnipartinn og fram á kvöld. Twitch.tv: https://www.twitch.tv/island_dota Fyrir þá sem vilja þá eru hér nokkur skemmtileg VODs sem hægt er að…

Lesa meira

Það voru ekki miklar upplýsingar að finna á facebook síðu lanmótsins HRingurinn um keppnirnar, úrslitin ofl., en það vantaði ekki endalausar tilkynningar um skráningu á mótið, tjékklisti og fleira.  Engar tilkynnignar var hægt að finna á heimasíðu mótsins hringurinn.net. Forsvarsmenn lansmótsins þurfa að huga að þessu, því að ekki eru allir á lanmótinu og margir hverjir hafa áhuga á að fylgjast vel með. Það kom þó stutt og snubbótt tilkynning um úrslitin, sem var eftirfarandi: CS:GO – Hafið LoL – Dab Fortnite – OGV 2 Starcraft II – ClusterFuQ Vil taka það fram að í fyrra stóðu admins sig virkilega…

Lesa meira

Í meðfylgjandi myndbandi má sjá Shroud horfa á myndbönd af handahófi frá twitch spjallinu hans. Þessi myndbönd eru vinsæl á youtube og eru til fjölmörgum útgáfum. Þar má sjá klippu frá íslenskum spilara í leiknum Rainbow Six Siege (1:30) og þrátt fyrir að þetta var flott deagle skot, þá var ekki að sjá mikil viðbrögð hjá Shroud. https://www.youtube.com/watch?v=Ohqxfjj93kE Mynd: skjáskot úr myndbandi.

Lesa meira

Nú á dögunum var haldið fyrsta Íslenska PlayerUnknown’s Battlegrounds online mót. 72 keppendur skráðu sig til leiks þar sem keppt var um fyrst tíu sætin. Spilað var með fyrirkomulaginu Solo og í verðlaun voru leikjaskjár, leikjamús og leikjamottur. Það var TEK eSports sem höfðu veg og vanda af undirbúningi mótsins. Úrslit urðu á þessa leið: 1 sæti: Underdog1 2 sæti: veazyy 3 sæti: Hugstar 4 sæti: The-KFC-Man!! 5 sæti: Dummdumm 6 sæti: BinniJ1nX 7 sæti: FreakayBeats 8 sæti: Trjaskeggur 9 sæti: DavidArnarson 10 sæti: Katnip_Evermeme Mynd: úr safni

Lesa meira