Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Nú á dögunum var nýtt map sett inn á PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) test serverana sem heitir Karakin. Lítið map eða einungis 4 reitir (2×2) og geta 64 spilarar spilað í einu í stað 100 manns. Mappið er ekki aðgengilegt á puplic serverunum, en það má vænta á allra næstu dögum. Vikendi mun þurfa lúta í lægra haldi og hættir þegar nýja mappið Karakin mætir á puplic serverana, en verður aðgengilegt í Custom Matches. Engin ný vopn eru í gangi, nema sticky bombs sem er notað til að komast í neðanjarðarbyrgin (bunker), en þar er mjög gott loot. Dark zones þarf…
Ný uppfærsla var gerð á leiknum Team Fortress 2 í gær, en síðasta uppfærsla var gerð 2. ágúst í fyrra. Uppfærslurnar eru mismiklar og þú ættir að sjá þær næst þegar þú ræsir leikinn í gegnum Steam. Fixed an exploit related to the Heavy being invisible Fixed an LOD problem with the Citizen Cane Fixed a materials problem with the Glittering Garland Fixed the Mislaid Sweater hiding the hat Added some tournament medals Updated the localization files Leikurinn er free to play á Steam hér. Mynd: teamfortress.com
PlayerUnknown’s Battlegrounds (PUBG) spilarinn Kaymind hefur gengið til liðs við eSports samfélagið Team Liquid. „I’m super pleased with Kaymind as our newest addition to the team. He’s by far the most popular and best player from NA. I couldn’t have wished for a better fit with the rest of the guys. He was the player we feared to face in all our drop locations so we’re lucky to have him on our side now. Kaymind is also a talented driver, that’s exactly what we need to fix our ‘Liquid driving’. Exciting times ahead!“ segir Frederik van Guldener PUBG framkvæmdastjóri Team…
Fortnite er einn vinsælasti tölvuleikurinn í dag, þremur árum eftir að hann kom á markaðinn. Á síðasta ári námu tekjur framleiðanda leiksins sem svarar til 220 milljarða íslenskra króna sem verður að teljast ansi gott. Þetta eru þó fjórðungi minni tekjur en 2018 sem var besta ár leiksins til þessa. CNN skýrir frá þessu, sem dv.is vekur athygli á. Tekjurnar 2018 eru mestu tekjur sem hafa fengist af tölvuleik í gegnum tíðina. Fortnite sat því á toppi tekjulistans 2018 og aftur í fyrra þrátt fyrir töluverðan samdrátt. Leikurinn er sérstaklega vinsæll hjá yngri börnum en eitt helsta vörumerki hans er…
Síðastliðna helgi stefndi framleiðendur EVE Online, í samvinnu við Hadean, PlayFab og Steam, á heimsmet í EVE Online leiknum. Sjá einnig: EVE Online stefnir á heimsmet Núverandi heimsmet var gert þegar EVE Online spilarar spiluðu samtímis 23. janúar 2018, en samtals tóku 6.142 leikmenn þátt í gífurlegum bardaga á netinu. Í heimsmetstilrauninni á laugardaginn s.l. spiluðu einungis 1,742 manns. Mynd: Steam netverslun.
Mánudaginn 25. nóvember mun Rafíþróttadeild Fylkis halda kynningarfund í nýrri aðstöðu sinni í Fylkisselinu, Norðlingabraut 12, þar sem Fimleika- og karatedeildir Fylkis eru einnig til húsa. Í fréttatilkynningu segir að kynnt verður hvað rafíþróttir eru og hvernig starfsemi Rafíþróttadeildarinnar verður háttað. Deildin verður með barna- og unglingastarf og stefnir að því að nýta tölvuleikjaspilun á jákvæðan, heilbrigðan og uppbyggjandi hátt og bæta samskipti milli foreldra og barna hvað varðar rafíþróttaiðkun. Eitt aðalmarkmið deildarinnar er að koma í veg fyrir félagslega einangrun krakka sem leita í tölvuleiki og virkja þau félagslega í ungmennastarfi Fylkis. Deildin mun bjóða upp á æfingar í…
Framleiðendur EVE Online, í samvinnu við Hadean, PlayFab og Steam, stefna á heimsmet í leiknum þar sem 10 þúsund leikmenn spila samtímis. Viðburðinn verður á laugardaginn 23. nóvember klukkan 20:00 á UTC tíma. Fyrir þá sem ekki vita, þá er EVE Online ókeypis á Steam hér. Tvö verðlaun verða veitt, þ.e. þeim flugmanni sem nær mestum gjaldmiðli leiksins (ZPC) á meðan á viðburðinum stendur yfir og hin verða gefin öðrum heppnum flugmanni af handahófi. Sigurvegararnir tveir fá hvort tveggja tvo miða á EVE Fanfest 2020 í Reykjavík, þar á meðal greitt fyrir flug og hótel. Að auki munu sigurvegarar fá…
Reynslusaga foreldra af 11 ára dreng sem greindur hefur með raskanir var birt á facebook síðu Rafíþróttadeildar Ármanns. Þar segir meðal annars að starfið hjá Rafíþróttadeild Ármanns hefur á þann hátt rofið hans félagslegu einangrun og styrkt hann félagslega og gefið honum aukið sjálfstraust sem hann hefur nýtt sér á öðrum sviðum í sínu lífi. Hér eftirfarandi er pistillinn: „Sonur minn er 11 ára og byrjaði að æfa með Rafíþróttadeild Ármanns þegar hún var stofnuð nú í haust 2019. Hann er greindur með raskanir sem eru hamlandi fyrir hann svo hann tekst á við ýmsar áskoranir í sínu daglega lífi.…
Stjórnvöld í Kína hafa ákveðið að setja tímamörk á tölvuleikjanotkun barna. Munu allir undir 18 ára aldri ekki getað spilað netleiki frá klukkan 22.00 á kvöldin til 8.00 á morgnana. Þá verður netleikjanotkun takmörkuð við 90 mínútur á hverjum virkum degi og í 180 mínútur á helgardögum og opinberum frídögum. Þá verður einnig sett þak á hversu miklum peningum börn og ungmenni mega verja til tölvuleikjanotkunar. Börn að 16 ára aldri mega aðeins eyða 200 júönum á mánuði, eða um 3.500 krónum, en 16 og 17 ára börn mega eyða tvöfaldri þeirri upphæð, að því er fram kemur á visir.is…
YouTube-stjarna, með rúmlega tvær milljónir fylgjenda, hefur verið settur í lífstíðarbann hjá tölvuleiknum Fortnite eftir að upp komst að hann hafði svindlað í leiknum. FaZe Jarvis, sem er hluti rafíþróttahópsins FaZe Clan, notaðist við svokallaða „aimbots“ í leik sem hann streymdi beint á YouTube-rás sinni, að því er fram kemur á visir.is sem fjallar nánar um málið hér. https://www.youtube.com/watch?v=iN3ttHug-BU Mynd: skjáskot úr myndbandi
