Author: Chef-Jack
Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
Það er ekki slæmt að hafa atvinnu af því að spila MineCraft og geta keypt sér flotta eign, en það getur Captain Sparklez svo sannarlega. Jordan Maron sem er með vinsælu Youtube rásina Captain Sparklez hefur sérhæft sig í að spila Minecraft og gerir myndbönd í kringum það. Jordan sem er með tæp 9 milljón youtube subscribe keypti höfðingjasetur á tæpar 600 milljónir í Hollywood og ekkert smásmíði, en myndir er hægt að skoða á vef Daily Mail hér. Í meðfylgjandi myndbandi sýnir Jordan MineCraft aðstöðuna hjá sér í nýja húsinu: https://www.youtube.com/watch?v=maC_JWXNy0c Mynd: skjáskot úr myndbandi.
„Alveg glæsilegt, en í gær var tímamót hjá EA þegar meira en níu milljónir innskráðir leikmenn spiluðu betu útgáfu Star Wars Battlefront. Er þetta ein stærsta beta spilamennska í sögu EA“, segir Sigurlína Ingvarsdóttir, yfirframleiðandi tölvuleiksins í tilkynningu sem hún birti á heimasíðu EA. Star Wars Battlefront kemur út 19. nóvember 2015 á stýrikerfunum PC, PlayStation 4 og Xbox One. Hér má sjá þegar Sigurlína kynnti leikinn á E3-ráðstefnunni í Los Angeles nú í sumar ásamt gameplay af leiknum: https://www.youtube.com/watch?t=4494&v=9Sr0XF091Ds Mynd: starwars.ea.com
WarDrake ættu margir í Íslenska leikjasamfélaginu að kannast við enda „gamall“ nagli í bransanum. Einhverjir bakþankar fóru í gang hjá WarDrake eftir að hafa margsinnis sagt nei við spilara um að gera klippur, en hann er einn af þeim sem gerir rugl flottar klippur. Meðfylgjandi er tilkynningin frá WarDrake sem birtst á facebook síðu Íslenska CS:GO samfélagsins: Ég hef verið ansi duglegur að segja nei uppá síðkastið, þ.e.a.s þegar einstaklingar hafa verið að biðja mig að gera stutta klippur handa þeim, hvort sem það var bara 1-2kills eða movie. En núna ætla ég að sýna smá lit, svo ég hugsaði með…
Team Fortress 2 hefur verið til í ansi mörg ár og enn kemur Valve með frábærar uppfærslur. UFO er næsta þema hjá þessum frábæra leik, ný vopn, möpp og að sjálfsögðu hattar omfl. Skrunið niður og horfið vídeó. Vídeó https://www.youtube.com/watch?v=-yQlDnIAR14 Ný möpp: Nánari umfjöllun er hægt að lesa hér. Leikurinn er ókeypis og er hægt að downloada honum hér í gegnum Steam. Myndir: skjáskot úr myndbandi.
Anno 2205 er nýr single-player leikur og er sjötti í Anno tölvuleikjaröðinni sem er þróaður af Ubisoft Blue Byte og gefin út af Ubisoft. Hér þarf spilarinn að byggja upp framtíðarborg og þarf að huga að öllu til að uppfylla þarfir borgarbúa líkt og leikurinn Anno 2070. Áætlað er að leikurinn komi út 3. nóvember á PC. Miðað við meðfylgjandi trailer þá lítur leikurinn alveg þokkalega vel út og gæti náð góðum vinsældum: https://www.youtube.com/watch?v=Pg0A6l1Yt2c Nánari umfjöllun um leikinn hér: https://www.youtube.com/watch?v=GKvHPS9KCGw Anno 2070 Gameplay https://www.youtube.com/watch?v=znMGuZsJpz8 Mynd: anno-game.ubi.com
Eins lengi og ég man eftir mér, skrifar Samúel Karl Ólason á Leikjavísi, hefur ákveðin bölvun legið yfir tölvuleikjum sem gerðir eru eftir kvikmyndum. Langflestir þeirra hafa einfaldlega verið hræðilegir. Þó eru auðvitað til undantekningar eins og Spider-man 2, Goldeneye og nú Mad Max. Leikurinn fjallar um Max Rockatansky og ferðir hans um auðnina sem heimurinn varð að eftir að vatnið kláraðist og heimsstyrjöld skall á. Myndin byggir ekki á sögu kvikmyndarinnar Mad Max: Fury Road heldur styðst hann við sama söguheim. Mad Max kemst í hann krappann og missir allt sitt í hendur stríðsherrans Scabrous Scrotus, sem Max særir…
Íslenski Call of duty spilarinn frægi lennzy er kominn á fullt í CS:GO og tekur hér snilldar ace: https://www.youtube.com/watch?v=epiCNJwVkIA Mynd: skjáskot úr myndbandi
Góð síða fyrir CS:GO playerinn sem langar að finna létta leið til þess að breyta aðeins til í crosshair stillingunum sínum og bæta við binds og fleira. tools.dathost.net
Leikjafréttir í samstarfi við Senu, ætla að gefa eitt eintak af Uncharted: The Nathan Drake Collection sem kemur út fyrir PlayStation 4 nú í vikunni. Það eina sem þú þarft að gera er að setja “like” á síðuna þeirra á Facebook ofl. í þeim dúr, en nánar um læk leikinn á Leikjafréttir hér. Í eftirfarandi myndbandi er GameSpot með góða umfjöllun um leikinn… bon apetit: https://www.youtube.com/watch?v=EOn7LvB8x9I Mynd: Skjáskot úr myndbandi
Geðveikt flashback af DreamHack Open Summer 2015 þegar Cristopher „GeT_RighT“ Alesund nær frábæru ACE-i. https://www.youtube.com/watch?v=MP1IvFBjbeM Mynd: skjáskot úr myndbandi
