Author: Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

„Núna er komið að því að Gamestöðin mun kveðja Smáralindina,“ þetta kemur fram í tilkynningu frá Gamestöðinni á facebook, en verslunin hættir á morgu 24. júlí eftir þriggja ára veru í Smáralindinni og verður því útibúið í Kringlunni eitt eftir. Mynd: facebook / Gamestöðin

Lesa meira

Í byrjun júlí bætti Íslenska CS:GO liðið WarMonkeys við tveimur meðlimum, en það eru þeir Þórir, TurboDrake, CS1.6 goðsögnin og verður hann þjálfari liðsins ásamt Aroni Ólafs sem stjóra liðsins. Þórir hefur gríðarlega keppnisreynslu og eru vandfundnir menn með meira innsæi eða ástríðu í þessum leik. Hann hefur ekki verið að keppa upp á síðkastið en það má segja að sem stofnandi TuDDans sé maðurinn ein helsta klappstýra Counter-Strike á Íslandi, segir í tilkynningu. IGL Dói (Critical) hafði eftirfarandi að segja um ráðninguna: “Það er mjög spennandi að fá einhvern til að deila ábyrgðinni með að skipuleggja ný plön og…

Lesa meira

ZenGaming tekur hér nokkuð mörg 1v1 í leiknum Counter-Strike: Global Offensive (CS: GO). Íslenski víkingurinn flottur með wappann: https://www.youtube.com/watch?v=BTHBFmPMiqA Youtube rás ZenGaming Fleiri myndbönd er hægt að horfa á Youtube rás ZenGaming með því að smella hér og ekki verra að strákurinn fái nokkur subscribe í leiðinni. Látum nokkur vídeó fylgja hér með: https://www.youtube.com/watch?v=UW_97aKNUDc https://www.youtube.com/watch?v=WWSU4zEK4jI https://www.youtube.com/watch?v=smjWt6__f4s Mynd: skjáskot úr myndbandi

Lesa meira

Lanmótið Tuddinn var haldið síðastliðna helgi í Íþróttahúsinu í Digranesi þar sem keppt var í Counter-Strike: Global Offensive (CS:GO).  Góð þátttaka var á lanmótið en hvorki meira né minna en 43 lið sem mættu til leiks. Það voru WarMonkeys sem sigruðu lanmótið, en úrslitin voru eftirfarandi: 1. sæti – WarMonkeys 2. sæti – VECA 3. sæti – Seven 4. sæti – GODS Í verðlaun var: 1. sæti: 200.000 kr í peningum ásamt 100.000 gjafabréfum frá Tölvulistanum 2. sæti: 100.000 kr í peningum ásamt 50.000  gjafabréfum frá Tölvulistanum 3. sæti: 50.000  kr í peningum ásamt 50.000  gjafabréfum frá Tölvulistanum Einnig var…

Lesa meira

Nörd Norðursins kemur hér með fróðlegt og skemmtilegt leikjarýni á nýjasta Doom leiknum sem margir hafa beðið eftir með mikilli eftirvæntingu eftir að sýnt var brot úr leiknum á E3 í fyrra. Slök fjölspilun segir ritstjóri og yfirnörd Norðursins Bjarki Þór Jónsson sem gefur leiknum 4.5 af 5 möguleikum, nánar hér. Með fylgir DOOM gameplay frá RadBrad: https://www.youtube.com/watch?v=AmP_wdxn7Qw Mynd: skjáskot úr myndbandi

Lesa meira

Tölvuleikjafyrirtækið CCP stefnir á að efla starfsemi sína hér á landi á næstunni en meðal annars verður horft til þess að styrkja EVE online leikinn með því að nýta þá þekkingu og tækni sem hefur byggst upp hjá fyrirtækinu undanfarin 13 ár síðan leikurinn kom út. Þetta segir Stefanía G. Halldórsdóttir, nýr framkvæmdastjóri fyrirtækisins á Íslandi í samtali við mbl.is, en nánar um málið er hægt að lesa á mbl.is með því að smella hér. Mynd: ccpgames.com

Lesa meira

Fram­leiðend­ur tölvu­leiks­ins Battlefield 4 illum­inati settu vænt­an­lega nýtt viðmið fyr­ir svo­kölluð „páska­egg“ (e. ea­ster eggs) í tölvu­leikj­um þegar þeir út­bjuggu nýj­asta leik­inn í þess­ari vin­sælu tölvu­leikjaröð. Þurftu spi­lend­ur að búa yfir mik­illi þraut­seigju við leit, góða kunn­áttu við að leysa þraut­ir og geta þýtt Mor­se kóða á er­lend tungu­mál. Páska­egg í tölvu­leikj­um eru auka­atriði eða fal­in skila­boð sem eru fal­in hinum hefðbundna not­enda, en hægt að finna með eft­ir­tekta­semi, heppni eða þraut­seigju við að leita slíkra hluta. Er afrakst­ur­inn mis­mik­il­væg­ur, en í þessu til­felli virðist sá sem fann páska­eggið alla­vega vera nokkuð sátt­ur. Hægt er að sjá þessa flóknu og löngu leið…

Lesa meira

Það hefur ekki farið framhjá mörgum að nýr Star Wars Battlefront leikur kom á markaðinn 17. nóvember. Árið 2013 gerði Walt Disney 10 ára samning á framleiðslu Star Wars tölvuleikja við tölvuleikjarisann Electronic Arts. Það er síðan leikjastúdíóið DICE sem að hefur undanfarin tvö og hálft ár unnið að framleiðslu Star Wars Battlefront og það ekki að ástæðulausu. DICE er þekkt fyrir framleiðslu sína á Battlefield leikjaseríunni og fyrrum framleiðendur Star Wars Battlefront 1 og 2 hafa aldrei farið leynt með það að þeir hafi sótt innblástur sinn í Battlefield 1942 sem kom út árið 2002 og er einmitt úr…

Lesa meira