Í fyrradag keppti Íslenska Battlefield 3 liðið Catalyst Gaming (cG) við Hollenska liðið GAMERT PWND í Semi Final í online mótinu Spring Cup 2012. Keppt var í möppunum Operation Metro og Caspian Border, en í Metro gekk eitthvað brösulega hjá cG þar sem þeir voru nokkuð illa æfðir en þó gekk þeim alveg ágætlega.
Muffin klúðraði smávegis með að rusha of grimmt en kom með afsökun að hann hafi verið búinn að drepa einn, vitað af einum sem væri að fara Reviva sá sem hann drap og bjóst bara við 2, en lenti í SpawnBomb og var illa leikinn með því.
„Vorum slappir í Caspian. Þeir stóðu sig ágætlega strákarnir í loftinu en það var bara, svo ég vilji ekki vera neitt að afsaka mikið… Þá er Battlefield 3 alveg ógeðslega gallaður eftir nýja patchinn og sýndi það sig út í gegn í þessu scrimmi“, segir Muffin-King á spjallinu og bætir við; „PBAsydney var samt duglegur með RPG að negla niður Heli 🙂 “
Lineup hjá cG:
Hemmi7913
CriSir
d0ct0r_who
diGfALLeNnNn
ellimerc
KrayZee
Muffin-K1ng
PBAsydney
slowpoke121
Lineup hjá PWND:
1ns0mnia
kryptttt
Fr4nske
Xant0r
BiG_MasTeR_L
GAMERT Rog3rcas
MosOrion
Rsport20
GAMERT PWND sigraði Catalyst Gaming naumlega með 253 vs 228 stig.
„Vorum ekki með okkar besta lineup í þessum leik. Nokkrir af okkur að koma úr fríi
og margir af okkur sem spila ekki BF3 nógu grimmt eins og þessir sem við vorum að spila við á móti. Vorum að spila á móti Hollendingum á Breskum Server og það þýðir bara eitt fyrir þá; Lægra Ping.. Og við vitum öll hvað það þýðir.
Þetta var samt þrusugott lið en var svolítið mikið að stóla á lága pingið sitt. Ég segi ekki meir. Fannst þetta ekki nógu gott hjá okkur, illa æfðir og ættum að fara gera meira af því.“, sagði Muffin-K1ng að lokum á spjallinu.
Catalyst Gaming eru komnir í loser brackets og spilar næst við liðið TeamSVK, en cG sigruðu einmitt það lið í mótinu 12. maí s.l. með 308 – 256. Fyrir þá sem ekki vita þá er TeamSVK skipað af bestu spilurum Slóvakíu og er meðal annars landslið þeirra í Nation Cup á ClanBase.
Fylgstu með eSports.is á facebook hér.