Íslenska Battlefield 3 liðið Catalyst Gaming keppti í fyrradag í online mótinu Spring cup 2012, en keppt var í möppunum Operation Firestorm og Operation Metro.
„Byrjuðum þetta vel eins og vanalega gerist í Firestorm, enda er þetta „Okkar Map“ að margra mati innan liðsins. Fór smávegis á hliðina þegar eitt stykki „Transport Helicopter“,
asnaðist á A-Flag þegar við vorum að spila sem US en annars fór þetta allt eftir áætlun.
Tickets segja svo bara rest“, en frá þessu segir Muffin-King á spjallinu.
1st Round sem US : 210 – 0
2nd Round sem RU: 219 – 0
Muffin-King segir að Metro gekk brösulega eins og oftast er vaninn, en þeir eiga smá í erfiðleikum með að spila Infantry möp, en þeir ætla sér að æfa betur og tala nú ekki um þegar „Close Quarters“ kemur út.
1st Round sem US: 177 – 0
2nd Round sem RU: 172 – 0
Svo þetta endaði með;
778 – 0
„Þetta var skemmtilegur leikur. Vorum ekki beint að spila okkar sterkustu menn á móti þeim, þetta var öðruvísi en gekk samt ágætlega, og var eiginlega bara nokkuð skemmtilegt frekar en strembin útpæling á strategíu. Miðað við það, finnst mér við hafa staðið okkur stórkostlega!“, segir Muffin-King að lokum á spjallinu.
Catalyst Gaming eru núna efstir í sínum riðli í Spring cup 2012, en næsti leikur þeirra er við TeamSVK á sunnudaginn 13. maí 2012 og verður gaman að fylgjast náið með þeim félögum.
Fylgstu með eSports.is á facebook hér.