Close Menu
    Nýjar fréttir

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Hverjir verða Geitur ársins 2026?

    21.05.2026
    1 2 3 … 350 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Tölvuleikir»CLIMB heldur vinnustofu fyrir leikjahönnuði í Reykjavík
    CLIMB - Logo
    Tölvuleikir

    CLIMB heldur vinnustofu fyrir leikjahönnuði í Reykjavík

    Chef-Jack19.04.20261 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link

    CLIMB - Logo

    CLIMB, stendur fyrir tveggja daga vinnustofu í Síðumúla 35 dagana 25. og 26. apríl. Viðburðurinn er hugsaður fyrir alla sem hafa áhuga á að þróa tölvuleiki, hvort sem fólk hefur reynslu eða er að stíga sín fyrstu skref.

    Vinnustofan skiptist í tvo daga með ólíkum áherslum. Fyrri dagurinn snýst um innblástur og hugmyndavinnu, þar sem þátttakendur hlýða á erindi frá reynslumiklu fólki úr greininni og mynda teymi til að þróa leikjahugmyndir.

    Seinni dagurinn fer svo í að útfæra hugmyndirnar í einfalda frumgerð og kynna niðurstöðurnar í lok dags.

    CLIMB heldur vinnustofu fyrir leikjahönnuði í Reykjavík

    Meðal fyrirlesara eru þau Melína Kolka og Rúnar Vestmann, stofnendur CLIMB, auk gestafyrirlesarans Ólafs Hrafns Steinarssonar, forstjóra Aska Studio og fyrrverandi formanns Rafíþróttasamtaka Íslands.

    Viðburðurinn er opinn öllum sem hafa áhuga á leikjagerð, hvort sem það eru forritarar, hönnuðir, listamenn, tónlistarfólk eða þeir sem sitja á góðri hugmynd. Ekki er gerð krafa um reynslu, en þátttakendur þurfa að vera að minnsta kosti 20 ára. Mælt er með að mæta með fartölvu og opinn huga.

    Takmarkaður fjöldi miða er í boði og skipuleggjendur hvetja áhugasama til að tryggja sér sæti tímanlega.

    Facebook viðburður hér.

    Myndir: Facebook / CLIMB

    Climb Melína Kolka Ólafur Hrafn Steinarsson Rafíþróttasamband Íslands Rúnar Vestmann
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026

    Nexus lokar í Kringlunni og Pedro fagnar

    25.05.2026

    Rafíþróttamaður ársins 2026 verður krýndur í fyrsta sinn á Íslandi

    13.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
      Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans
      29.05.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.