[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / PC leikir / Eini íslendingurinn með Planetside2 beta lykil?
Auglýsa á esports.is?

Eini íslendingurinn með Planetside2 beta lykil?

MMOFPS leikurinn PlanetSide 2 verður gefinn út af Sony Online Entertainment og er þetta sjálfstætt framhald af leiknum PlanetSide sem gefin var út árið 2003.

Ekki er komin útgáfudagur af leiknum, en tilkynning um útgáfudag var gefin út á sýningunni Sony Fan Fair í fyrra um að hann kæmi út 7. júlí 2011 og síðan þá hefur ekkert gerst fyrr en nú nýlega, en þá virðist vera komin einhver hreyfing á hönnuninni.

„Var enda við að fá Planetside2 beta priority key.  Kannski ég skelli upp video um leikinn á íslensku og kynni fyrir ykkur sem eru áhugasamir um hvað leikurinn gengur út á“, segir Muffin-King á spjallinu.

Ekki er vitað um að fleiri íslendingar séu komnir með beta lykil, en þeir sem hafa áhuga á að stofna íslenskt samfélag í kringum leikinn eru vinsamlegast beðnir um að láta í sér heyra á spjallinu og sett verður þá upp sér spjallsvæði fyrir leikinn.

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

Netfang verður ekki birt

x

Check Also

Jacksonville fjárfestir 420 milljónum króna í rafíþróttaaðstöðu við Háskólann í Norður-Flórída

Jacksonville fjárfestir 420 milljónum króna í rafíþróttaaðstöðu við Háskólann í Norður-Flórída

Borgarstjóri Jacksonville, Donna Deegan, skrifaði ...