Þó nokkuð stórar uppfærslur hafa orðið á Steam síðustu daga sem hefur haft þær afleiðingar að Counter Strike:Source serverar hafa legið niðri og eru íslensku serverarnir þar með taldir. Sumir admin´s hafa brugðist skjótt við uppfærslunni eins og sjá má game-monitor.com og eru nokkrir íslenskir css serverar nú þegar uppi.
Fjölmargir íslenskir Css spilarar hafa sent skilaboð á fréttaritara eSports.is og forvitnast með Simnet serverana, en þeir hafa ekki komið upp eftir uppfærsluna. eSports.is athugaði í herbúðir Simnet manna og ræddi þar við Kruzer einn af lykilmönnum á Simnet serverunum um hvort vænta megi serverana upp á næstunni.
Já þeir koma upp, en það er bara mikið að gera hjá starfsmönnum Símans sem sjá um þetta á hinum endanum. Það var eitthvað vandamál með marga servera eftir síðustu Cs:source uppfærslu þannig að það er aðeins meiri vinna við að setja þá aftur í gang en vanalega, sagði Kruzer í samtali við eSports.is.
Mynd: Skjáskot tekið 23. apríl 2013 af vefnum game-monitor.com