Comic Con þekkja nú margir en sýningin er haldin í San Diego þar sem grínistar og bíómynda aðdáendur koma saman og sýna cosplay búninga sem hafa t.a.m. unnið í að hanna allt árið. Thomas DePetrillo tók þetta skrefinu lengra og mætti í búning sem er eftirlíking af Iron Man í Avengers 2: Age of Ultron þar sem Robert Downey Jr lék eftirminnilega sem Tony Stark.
Það tók Thomas 2 ár að hanna búninginn, 1.600 klukkustundir og það tekur hann um 20 mínútur að klæða sig í búninginn. Myndir er hægt að skoða á vef Daily Mail hér.
Hollywood stjörnurnar elska líka Comic Con
Mynd: Skjáskot úr myndbandi.