Á morgun, miðvikudaginn 22. janúar, verður útsending á Twitch hjá blizzheroes klukkan 19:00 á Íslenskum tíma en þar mun Dustin Browder, aðal framleiðslustjórnandi leiksins Heroes of the Storm ( HotS ) sitja fyrir svörum ásamt þeim Kaeo Milker og Kevin Johnson, sem eru einnig hátt settir fýrar hjá Blizzard, að því er fram kemur á facebook grúppu Íslenskir Heroes of the Storm.
Þeir sem eru á Twitter geta baunað á þá spurningar sem vonandi verða notaðar á @BlizzHeroes, en taggið er: #HeroesQA.
Það verður fróðlegt að fylgjast með umræðunni og það er aldrei að vita nema að í ljós kemur hvenær betan opnar, en fyrir þá sem eru mjög áhugasamir fyrir leikinn, geta farið inn á fb-grúppu Íslenskir Heroes of the Storm.
Mynd: heroesofthestorm.com