Íris Kristín Andrésdóttir, einn aðaleigendi íslenska leikjafyrirtækisins Gogogic, hefur starfað hjá fyrirtækinu síðastliðin sex ár og nú síðast sem aðalframleiðandi. Í maí síðastliðnum var henni boðið starf hjá bandaríska útgáfufyrirtækinu Meteor Entertainment sem hún þáði, en fyrirtækið mun meðal annars sjá um útgáfu fyrstu persónu skotleiksins HAWKEN.
Nördar Norðursins birta ítarlegt viðtal við Írisi sem hægt er að lesa með því að smella hér.
eSports.is vakti athygli á viðtalinu við Írisi á facebook síðunni, en þar skrifaði Íris athugasemd og hvetur íslendinga til að skrá sig í betuna:
„Að sjálfsögðu skella sér á www.playhawken.com og skrá sig í Betuna! :)“.