eSports barinn Meltdown sem hóf göngu sína í París í Frakklandi 3. maí 2012, hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð og er nú þriðji Meltdown staðurinn í deiglunni í Bretlandi sem kemur til með að opna 1. júní næstkomandi og verður staðsettur við 342 Caledonian brautina í London. Meltdown eSports staðirnir eru þá í þremur löndum, þ.e. í Frakklandi, Þýskalandi og nú í Bretlandi.
Meltdown býður meðal annars upp á beina útsendingu, umfjöllun og lýsingu á völdum mótum sjö daga vikunnar, t.a.m. í tölvuleikjunum StarCraft2, League of Legends, DotA2 og Counter Strike.
Heimild
Meltdown á facebook:
París
Berlín
London
Ætli það sé grundvöllur fyrir alvöru eSports bar hér á Íslandi, það er hugleiðing dagsins.
Mynd af facebook síðu Meltdown.