Núna stendur yfir endurskipulagning á leikjaáhugamálunum á Huga og hafa leikirnir Dota 2, League of Legends, Heroes of Newerth verið færðir frá Blizzard áhugamálinu yfir á Herkænskuleiki.
Ritstjóri á Huga segir meðal annars í tilkynningu á Huga;
Ef við sameinumst getum við fengið að sjá Huga jafnvel stærri en hann var fyrir tíma Facebook, tröllsins mikla sem tröllríður öllu og ógnar lífi opinna spjallvefja þar sem að fólk getur talað við hvurn sem er án takmarkanna annarra en þeirra að sýna sjálfgefna tillitssemi og aðgát í nærveru sálar.