Nýjustu fréttir
Heim / PC leikir / Fyrsti þátturinn af GameTíví er dottinn á netið | Góða skemmtun
Hverju viltu fylgjast með?  Þitt er valið

Fyrsti þátturinn af GameTíví er dottinn á netið | Góða skemmtun

Bara snillingar

GameTíví meistararnir Ólafur Þór Jóelsson og Sverrir Bergmann snúa nú aftur á fornar slóðir. Þátturinn þeirra sívinsæli Game Tíví er kominn á Popptíví, þar sem hann hóf göngu sína upphaflega.  GameTíví tístaði í dag “ Fyrsti þátturinn af #GameTíví er dottinn á netið 🙂 Góða skemmtun :D“, en þeir félagar fara yfir allt það nýjasta á sviði tölvuleikja og þetta er því þáttur sem enginn tölvuleikjaunnandi má missa af.

Í þessum fysta þætti gagnrýna Óli og Sverrir leikina Sleeping Dogs og Darksiders 2, þeir heimsækja og dæma 7D bíóið í Skemmtigarðinum, skoða skemmtilegan leik á iPad, birta nýjan topplista yfir 5 verstu ofurhetjuleiki allra tíma ásamt því að skoða Borderlands 2, Call of Duty: Black Ops 2, Far Cry 3, Counter-Strike: Global Offensive, Guild Wars 2, Remember Me, þetta og miklu meira í þættinum sem hægt er að skoða með því að smella hér.

GameTíví er á dagskrá Popptíví á fimmtudagskvöldum klukkan 19.50.

Mynd: Skjáskot úr myndbandi.

Um Chef-Jack

Chef-Jack er matreiðslumaður að mennt og hefur verið með pennann á lofti til fjölda ára og skrifað mikið um tölvuleiki og allt sem snýr að Íslensku tölvuleikjasamfélaginu. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

Netfang verður ekki birt

x

Check Also

Call of Duty: Black Ops 6

Cod: black ops 6, Dragon Age á meðal leikja í 51. þætti Leikjavarpsins

Sveinn Aðalsteinn, Daníel Rósinkrans og ...