CCP Games býður nú íslenskum spilurum að stíga inn í nýjasta heim fyrirtækisins þegar EVE Vanguard verður kynnt í sérstökum viðburði þann 18. September og hefst klukkan 19. Um er að ræða nýjan skotleik í þróun hjá CCP og verður þetta einstakt tækifæri til að prófa leikinn í fyrsta sinn.
Viðburðurinn, sem fer fram í samstarfi við GameTíví, Nörd norðursins og Leikjaspjallið, ber heitið EVE Vanguard Nemesis og verður leikurinn settur upp í öllum tölvum Arena Gaming. Þátttakendur geta því stokkið beint inn í hasarinn án endurgjalds og upplifað nýja vídd í skotleikjaflórunni.
Starfsmenn CCP Games verða á staðnum, taka sjálfir þátt í leiknum og ræða við gesti. Fyrir þá sem mæta snemma verður einnig í boði EVE-varningur.
Viðburðurinn er opinn öllum, jafnt vönum spilurum sem nýliðum, og er þetta gullið tækifæri til að verða hluti af sögu EVE í upphafi nýs kafla.




