Síðastliðnar 3 vikur hafa fjölmargir sent mail á vefstjóra eSports.is með beiðni um að fá styrk fyrir online- og lanmót og hafa allir umsækjendur fengið svar. Hinsvegar hefur enginn þakkað fyrir sig eða svarað þeim svar-tölvupóstum sem að vefstjóri hefur sent frá sér um að eSports.is er alveg til í að styrkja ef farið er eftir skilyrðunum.
Það virðist sem að hugarfarið hjá íslenskum spilurum að vilja fá allt upp í hendurnar, en vilja ekki leggja sitt af mörkum fyrir styrkinn.
Furðulegur hugsunarháttur.
Hægt er að lesa allt um styrkumsóknir hér.