[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / HRingurinn / HRingurinn: Hér eru sigurvegarar mótanna – Admins… hysjið upp um ykkur brækurnar!
Auglýsa á esports.is?

HRingurinn: Hér eru sigurvegarar mótanna – Admins… hysjið upp um ykkur brækurnar!

Það voru ekki miklar upplýsingar að finna á facebook síðu lanmótsins HRingurinn um keppnirnar, úrslitin ofl., en það vantaði ekki endalausar tilkynningar um skráningu á mótið, tjékklisti og fleira.  Engar tilkynnignar var hægt að finna á heimasíðu mótsins hringurinn.net.

Forsvarsmenn lansmótsins þurfa að huga að þessu, því að ekki eru allir á lanmótinu og margir hverjir hafa áhuga á að fylgjast vel með.

Það kom þó stutt og snubbótt tilkynning um úrslitin, sem var eftirfarandi:

CS:GO – Hafið
LoL – Dab
Fortnite – OGV 2
Starcraft II – ClusterFuQ

Vil taka það fram að í fyrra stóðu admins sig virkilega vel og birtu meðal annars á facebook myndir af öllum sigurvegurum ásamt ítarlegum upplýsingum um hvert mót, vel gert, sjá nánar hér.

Mynd: Skjáskot úr kynningarmyndbandi frá því í fyrra

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

Netfang verður ekki birt

x

Check Also

Lanmótið HRingurinn á næsta leiti

Lanmótið HRingurinn á næsta leiti ...