„Við bjuggum síðuna og leikjaþjóninn til alveg sjálf og settum þetta allt saman upp. Við sjáum líka um fjármálin sjálf, en ef það verður of flókið þarf mamma stundum að hjálpa okkur,“ segir hinn 14 ára gamli Guðni Natan Gunnarsson í samtali við Fréttablaðið um heimasíðuna osom.is sem hann heldur úti ásamt tvíburasystur sinni, Sigríði Stellu Gunnarsdóttur.
Heimasíðan er kynningarsíða fyrir leikjaþjóninn osom.is í leiknum Minecraft. Eitthvað virðist vera hálfklárað verkefni hjá þeim á heimasíðunni, en ekki er hægt að fara á síðuna beint með osom.is, heldur þarf að skilgreina www. á undan léninu, þ.e. www.osom.is.