Það er alltaf að gaman að fylgjast með íslenska leikjasamfélaginu, en oft er skotið fast á hina og þessa, en að endingu eru nú allir vinir sem betur fer.
Meðfylgjandi mynd var póstuð á spjallið og sagt að íslenska myR clanið hafi skellt sér í göngutúr og hittu þar Ingó veðurguð, en hér var einungis um létt troll í gangi, „haha nei, veit ekkert hverjir þetta eru en enginn af þessum fallegu mönnum er í myR“, sagði dannoz á spjallinu.