Íslenska StarCraft samfélagið hefur hug á því að halda lanmót í sumar og það í nýja aukapakkanum StarCraft II:Heart of the Swarm (SC2:HotS). Skoðanakönnun er farin í gang á facebook grúppu SC2 samfélagsins og fimmtán spilarar hafa svarað Já um að mæta, tveir ætla ekki mæta og þrettán mæta kannski.
Engin dagsetning er komin enda allt á frumstigi en hugað er að halda lanmótið eftir prófin hjá framhaldskólum, HÍ, HR osfr.