Nú um helgina keppti Counter Strike:Source liðið sUpEr sEriOUs (CaPPiNg!, aNdrehh, skipid, wNe og an.di) í online mótinu EMS X við liðið Wild-Play og töpuðu með 16 : 3 Wild-Play í vil.
Wild-Play fengu refsistig fyrir að vera ekki búnir að setja upp lineup fyrir leikinn, en engu að síður náðu þeir sigri við sUpEr sEriOUs.
„Ekkert sérstakt klikkaði, enduðum að við þrír vorum með 100 ping og vorum ekki að hitta nógu vel og þurftum að bíða eftir að einn af þeim installaði css eftir að hafa fengið nýja tölvu og var ekki búinn að hugsa út í það og þurftum að bíða í 40-50 mínútur eftir þeim. Síðan náðu þeir að byrja í ct og við náðum bara þremur roundum á þá en þeir lokuðu okkur af allstaðar. Og svo tóku þeir fyrsta round í sínum terr helmingi, með 4 mann frá stavros sem endaði í 1on1 og tóku restina“, sagði CaPPiNg í samtali við eSports.is aðspurður um hvað klikkaði í leiknum.
Næsti leikur er á sunnudaginn 13. maí 2012 kl. 19:00 og það við liðið Mighty By Kind.
Fylgstu með eSports.is á facebook hér.
*Fyrir þá sem ekki vita, þá þýðir LO3 / Live on three, þ.e. mappið endurræsir sig þrisvar og leikurinn hefst.