Eftir að fjöldi kynferðislegra leikja hvarf af Steam um síðustu mánaðamót, fóru að heyrast sögusagnir um að Mastercard hefði þrýst á Valve um að fjarlægja slíkt efni af Steam. Nú hefur Mastercard stigið fram og hafnar alfarið aðkomu að málinu.
Eins og greint var frá á esports.is í júlí síðastliðnum hurfu óvænt fjölmargir leikir með kynferðislegu efni af sölukerfi Steam þann 26. júní. Um var að ræða fjölbreytt úrval leikja, flestir frá japönskum uppruna eða sjálfstætt gefin út, og höfðu margir þeirra verið aðgengilegir í áraraðir án inngrips. Með fjarlægingunni vaknaði spurningin hvort Valve væri að innleiða nýja ritskoðunarstefnu, eða hvort ytri aðilar hefðu haft áhrif.
Nú hefur Mastercard brugðist við vangaveltunum. Í svari til bandaríska miðilsins Kotaku segir talsmaður fyrirtækisins að Mastercard hafi „ekki gefið út neina beiðni né þrýst á Valve eða aðra að fjarlægja tiltekna tölvuleiki.“ Þá er tekið fram að fyrirtækið setji ekki fram lista yfir efni sem beri að fjarlægja, heldur sé það á ábyrgð samstarfsaðila að uppfylla skilmála Mastercard og eigin reglur um stefnu á birtingu á efni.
Sú tilgáta hafði fengið byr undir báða vængi að Mastercard hefði komið að málinu, í ljósi fyrri afskipta fyrirtækisins af dreifingu klámfengins efnis, meðal annars þegar Pornhub var þrýst til að herða reglur um aldurs- og samþykkisstaðfestingu árið 2021. Engar slíkar formlegar aðgerðir virðast þó hafa átt sér stað í tilfelli Steam.
Valve hefur enn ekki tjáð sig opinberlega um fjarlægingarnar, né útskýrt hvað lá þar að baki. Leikirnir sem hurfu voru ekki endilega brotlegir við neinar þekktar reglur og höfðu í mörgum tilfellum hlotið jákvæða umfjöllun, bæði frá notendum og gagnrýnendum.
Málið dregur fram óljós mörk á milli innihaldsstefnu, viðskiptahagsmuna og áhrifavalds greiðslumiðlara á birtingarmöguleika skapandi verka. Sú staðreynd að hvorki Valve né Mastercard veiti skýr svör heldur umræðunni áfram opinni og óleystri.
https://t.co/ORNC1ZIyck pic.twitter.com/T4B9cVUuLY
— Mastercard News (@MastercardNews) August 1, 2025




