[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / Tölvuleikir / Minecraft bíómynd með stórleikurunum Jack Black og Jason Momoa – Sjáðu stikluna hér
Auglýsa á esports.is?

Minecraft bíómynd með stórleikurunum Jack Black og Jason Momoa – Sjáðu stikluna hér

Ný stikla fyrir bíómyndina Minecraft er komin út, en þar má sjá stórleikarana Jack Black og Jason Momoa í aðalhlutverkum. Í myndinni eru einnig Emma Myers („Wednesday“), Danielle Brooks („The Color Purple“), Sebastian Eugene Hansen („Just Mercy, „Lisey’s Story“) og Jennifer Coolidge.

Jack Black er ekki alveg ókunnugur þegar kemur að leika í bíómyndum tengt leikjum, var í Jumanji bíómyndunum, raddaði Bowser í Super Mario Bros og Claptrap í Borderlands.

Minecraft bíómyndin verður sýnd á næsta ári í apríl 2025.

Horfið á stikluna hér að neðan, sjón er sögu ríkari:

Myndir: skjáskot úr myndbandi

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
x

Check Also

McDonald’s - Minecraft

Stærsta samstarf ársins? – Nýr matseðill fyrir tölvuleikjaunnendur

Skyndibitakeðjan McDonald’s hóf nýverið samstarf ...