Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Nýr yfirþjálfari Arena ráðinn til starfa – „Stuðningur foreldra skiptir öllu máli,“ segir Patrekur
    „Við sjáum meiri metnað og æfingavilja,“ segir Patrekur Gunnlaugsson, nýr yfirþjálfari Arena Gaming
    Hjörtur Vigfússon og Patrekur Gunnlaugsson eftir að samkomulag var undirritað.
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Nýr yfirþjálfari Arena ráðinn til starfa – „Stuðningur foreldra skiptir öllu máli,“ segir Patrekur

    Chef-Jack19.01.2026Uppfært19.01.20263 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    „Við sjáum meiri metnað og æfingavilja,“ segir Patrekur Gunnlaugsson, nýr yfirþjálfari Arena Gaming
    Hjörtur Vigfússon, framkvæmdastjóri Arena, og Patrekur Gunnlaugsson við undirritun samkomulags.

    Arena Gaming hefur, í samstarfi við rafíþróttadeildir Breiðablik, HK, FH og Fylkir, ráðið Patrek Gunnlaugsson í starf yfirþjálfara.  Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, sem er til húsa í Turninum á Smáratorgi 3. Patrekur hefur þegar hafið störf nú í upphafi nýs árs.

    Patrekur er ættaður frá Húsavík og býr yfir langri og fjölbreyttri reynslu í rafíþróttum. Hann hefur spilað tölvuleiki frá barnsaldri og var um árabil meðal fremstu spilara landsins í Counter-Strike, þar sem hann keppti undir nickinu Pat. Samhliða keppnisferlinum hefur hann byggt upp öflugan feril sem þjálfari og leiðtogi, meðal annars í starfi með börnum og unglingum. Hann er með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lagt áherslu á faglega og markvissa nálgun í þjálfun.

    „Við sjáum meiri metnað og æfingavilja,“ segir Patrekur Gunnlaugsson, nýr yfirþjálfari Arena Gaming
    FH ingar taka sigurinn á ungmennamóti í rafíþróttum. Frá vinstri eru Þorlákur Gottskálk Guðfinnsson og Brimir Leó Bjarnason ásamt Patreki Gunnlaugssyni.

    Undanfarin ár hefur Patrekur þjálfað rafíþróttir hjá FH og Fylki fyrir iðkendur á aldrinum átta til sextán ára og jafnframt komið að verkefnum tengdum landsliðsþjálfun í rafíþróttum og er meðal annars þjálfari kvennalandsliðsins í Counter-Strike. Þar hefur hann verið í fararbroddi við að móta uppbyggilegt starf þar sem þjálfun er sniðin að þörfum hvers iðkanda og andleg færni og líkamleg hreyfing fléttast inn í heildræna nálgun.

    Í tilkynningu Arena Gaming kemur fram að Patrekur muni, ásamt öflugu teymi aðstoðarþjálfara, byggja upp metnaðarfullt rafíþróttastarf og færa því nýjar áherslur. Jafnframt er Daníel Sigurvinssyni, fráfarandi yfirþjálfara, þakkað fyrir mikilvægt framlag og gott samstarf.

    „Við sjáum meiri metnað og æfingavilja,“ segir Patrekur Gunnlaugsson, nýr yfirþjálfari Arena Gaming
    Alexander Orri Eiríksson og Benedikt Nóel Benediktsson úr Fylki ásamt Patreki Gunnlaugssyni.

    Patrekur segir að mótahaldið sé lykilþáttur í starfinu.

    „Á hverri önn eru svo yfirleitt tvö til þrjú ungmennamót þar sem um hundrað krakkar koma saman og keppa, oftast í Fortnite og Minecraft og stundum í fleiri leikjum. Þessi mót hafa gengið gríðarlega vel og eru sterk gulrót fyrir börnin.

    Iðkendur spyrja reglulega hvenær næsta mót sé og það eykur mætingu, metnað og æfingavilja, því þau vilja bæta sig og mæta betur undirbúin,“

    segir hann í samtali við esports.is og bætir við að mótin hafi einnig reynst afar jákvæð fyrir foreldra, sem mæti, fylgist með og hvetji börnin áfram líkt og í öðrum íþróttum.

    Hann nefnir einnig dæmi sem situr í honum.

    „Ég man sérstaklega eftir móður sem kom með drenginn sinn í metnaðarfullan Fortnite hóp. Hún sagðist ekki vita neitt um leikinn, ég útskýrði í stuttu máli hvernig hann virkar og hún stóð við hliðina á honum á mótinu.

    Hún fagnaði með honum, hvatti hann áfram og var greinilega stolt að sjá hann standa sig vel í umhverfi þar sem hann hafði skýr markmið, góða leiðsögn og stuðning.“

    Skráningar á rafíþróttaæfingar Arena Gaming fyrir vorönn 2026 eru nú opnar og stefnt er að því að æfingar hefjist upp úr miðjum janúar. Einnig er í boði að koma á prufuæfingar.

    Myndir: úr einkasafni / Patrekur Gunnlaugsson

    Arena Gaming counter strike Counter Strike 2 Fortnite Battle Royale Íslenskt efni Patrekur Gunnlaugsson Rafíþróttir
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.