
Arena Gaming hefur, í samstarfi við rafíþróttadeildir Breiðablik, HK, FH og Fylkir, ráðið Patrek Gunnlaugsson í starf yfirþjálfara. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu, sem er til húsa í Turninum á Smáratorgi 3. Patrekur hefur þegar hafið störf nú í upphafi nýs árs.
Patrekur er ættaður frá Húsavík og býr yfir langri og fjölbreyttri reynslu í rafíþróttum. Hann hefur spilað tölvuleiki frá barnsaldri og var um árabil meðal fremstu spilara landsins í Counter-Strike, þar sem hann keppti undir nickinu Pat. Samhliða keppnisferlinum hefur hann byggt upp öflugan feril sem þjálfari og leiðtogi, meðal annars í starfi með börnum og unglingum. Hann er með BSc gráðu í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík og hefur lagt áherslu á faglega og markvissa nálgun í þjálfun.

Undanfarin ár hefur Patrekur þjálfað rafíþróttir hjá FH og Fylki fyrir iðkendur á aldrinum átta til sextán ára og jafnframt komið að verkefnum tengdum landsliðsþjálfun í rafíþróttum og er meðal annars þjálfari kvennalandsliðsins í Counter-Strike. Þar hefur hann verið í fararbroddi við að móta uppbyggilegt starf þar sem þjálfun er sniðin að þörfum hvers iðkanda og andleg færni og líkamleg hreyfing fléttast inn í heildræna nálgun.
Í tilkynningu Arena Gaming kemur fram að Patrekur muni, ásamt öflugu teymi aðstoðarþjálfara, byggja upp metnaðarfullt rafíþróttastarf og færa því nýjar áherslur. Jafnframt er Daníel Sigurvinssyni, fráfarandi yfirþjálfara, þakkað fyrir mikilvægt framlag og gott samstarf.

Patrekur segir að mótahaldið sé lykilþáttur í starfinu.
„Á hverri önn eru svo yfirleitt tvö til þrjú ungmennamót þar sem um hundrað krakkar koma saman og keppa, oftast í Fortnite og Minecraft og stundum í fleiri leikjum. Þessi mót hafa gengið gríðarlega vel og eru sterk gulrót fyrir börnin.
Iðkendur spyrja reglulega hvenær næsta mót sé og það eykur mætingu, metnað og æfingavilja, því þau vilja bæta sig og mæta betur undirbúin,“
segir hann í samtali við esports.is og bætir við að mótin hafi einnig reynst afar jákvæð fyrir foreldra, sem mæti, fylgist með og hvetji börnin áfram líkt og í öðrum íþróttum.
Hann nefnir einnig dæmi sem situr í honum.
„Ég man sérstaklega eftir móður sem kom með drenginn sinn í metnaðarfullan Fortnite hóp. Hún sagðist ekki vita neitt um leikinn, ég útskýrði í stuttu máli hvernig hann virkar og hún stóð við hliðina á honum á mótinu.
Hún fagnaði með honum, hvatti hann áfram og var greinilega stolt að sjá hann standa sig vel í umhverfi þar sem hann hafði skýr markmið, góða leiðsögn og stuðning.“
Skráningar á rafíþróttaæfingar Arena Gaming fyrir vorönn 2026 eru nú opnar og stefnt er að því að æfingar hefjist upp úr miðjum janúar. Einnig er í boði að koma á prufuæfingar.
Myndir: úr einkasafni / Patrekur Gunnlaugsson



