[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / PC leikir / Óþroskaðir íslenskir Cs spilarar.. | Cs menn eiga síðasta orðið….
Auglýsa á esports.is?

Óþroskaðir íslenskir Cs spilarar.. | Cs menn eiga síðasta orðið….

Facebook tölvuleikja grúppur spretta upp eins og gorkúlur en töluvert er af íslenskum grúppum í hinum ýmsum leikjum, í League of legends, Counter Strike 1.6, Counter Strike:Source, Starcraft 2 og Dota 2 svo eitthvað sé nefnt.

Það eru greinilega einhverjar erjur í gangi á milli tveggja íslenskra grúppa, þ.e. Dota 2, en fyrri grúppan var stofnuð 16. mars s.l. og er núna með 45 meðlimi og seinni grúppan var stofnuð 12. apríl s.l. og er með sama fjölda eða 45 meðlimi.

„Mér sýnist þessi grúppa ætla að taka fram úr –Dota 2 Ísland– í stærð, það er alveg spurning hvort það eigi eitthvað að vera að loka þessari“ er skrifað í einu innleggi á –Dota 2 á Íslandi-, og annar tekur undir það og svarar: „vorum einmitt að ræða það að það er eitthver cs klíka sem stjórna hinni eru frekar óþróskari meðan við aldur“.

Umræðan hélt svo áfram: „Alltaf verið að drulla yfir cs allsstaðar.. passið ykkur bara, við cs menn munum eiga síðasta orðið“….

Látum alveg ógert með stafsetningarvillur, en baráttan er greinilega ekki einungis í leiknum sjálfum, heldur hefur hún færst einnig yfir á facebook grúppurnar.  Munið bara að öll dýrin í skóginum eiga að vera vinir 🙂

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

Svara

Netfang verður ekki birt

x

Check Also

GameTíví sýnir Helldivers 2 í beinni útsendingu í kvöld

GameTíví sýnir Helldivers 2 í beinni útsendingu í kvöld

Í kvöld, mánudagskvöldið 26. maí, ...