Japanska raftækjafyrirtækið Sony tilkynnti í dag að næsta kynslóð Playstation leikjatölvunnar, Playstation 5, muni koma á markað fyrir jólavertíðina 2020.
Hún mun leysa fjórðu kynslóð leikjatölvanna af hólmi, en Playstation 4 kom fyrst á markað árið 2013, að því er fram kemur á mbl.is sem fjallar nánar um leikjatölvuna.
Mynd: Playstation.com