PUBG Corporation og KRAFTON kynna nýjan taktískan extraction-skotleik sem ber nafnið PUBG: Black Budget. Leikurinn er FPP þar sem spennan, óvissan og taktíkin móta alla upplifun.
Leikmenn stíga inn í hlutverk sérsveitarmanns sem er kallaður til í classified mission á afskekktri eyju. Þar þarf að endurheimta háleynilegar rannsóknir úr yfirgefnu rannsóknarmiðstöð. Eyjan er föst í tímalykkju sem stafar af yfirnáttúrulegu fyrirbæri, Anomaly, og heldur öllu umhverfinu í stöðugum óstöðugleika.
Markmiðið er að safna gögnum, rannsaka þau og afhjúpa sannleikann um leyniverkefnið SAPIENS og hina dularfullu starfsemi þess. Á milli verkefna geta leikmenn byggt upp eigin bækistöð, smíðað nýjan búnað og eflt færni persónunnar. Umhverfið verður sífellt óútreiknanlegra og gerir hverja innrás að hættulegu kapphlaupi við tímann.
Í beinni samkeppni við vinsæla titla
Leikurinn stendur þó frammi fyrir harðri samkeppni á borð við Arc Raiders og Escape from Tarkov.
Víðtækt alfatest án nokkurra takmarkana
Lokaða alfatestið stendur yfir í tvær vikur og fer fram á PC í gegnum Steam. Testið nær til leikmanna í Norður Ameríku, Evrópu og Asíu. Engin trúnaðarskylda gildir og þátttakendur geta því streymt, deilt og rætt leikinn án takmarkana.
Leikurinn er á ensku, kóresku, kínversku og rússnesku. Aðeins FPP er í boði. Leikmenn sækja um þátttöku í gegnum Steam síðu leiksins og fá lykil ef þeir eru valdir. Einnig er hægt að tryggja sér aðgang með því að fylgjast með prófunum í beinni á Twitch eða Chzzk og fá lykil í gegnum Drops.
Þar sem um alfatest er að ræða geta leikmenn búist við tæknilegum hnökrum.
Dagsetningar prófsins:
Vika 1: 12. desember kl. 01:00 til 14. desember kl. 23:59 PST
Vika 2: 19. desember kl. 01:00 til 21. desember kl. 23:59 PST
Myndir: Steam / PUBG: Black Budget















