Nú fer að styttast í Eurovision-söngvakeppnina sem haldin er í Malmö í Svíþjóð en í kvöld fer fram fyrri undankeppni keppninnar og seinni á fimmtudaginn en þar mun framlag Íslands þetta árið „Ég á líf“ í flutningi Eyþórs Inga. Aðalkeppnin fer síðan fram laugardaginn 18. maí næstkomandi.
Valgarður Uni hefur sett saman skemmtilegt myndband sem er þrívíddar animation af „Ég á líf“ í Minecraft útgáfu, en við það notaði hann forritin Blender 2.66 og Sony Vegas Pro 12.
Sjón er sögu ríkari: