Núna 21. ágúst næstkomandi kemur tölvuleikurinn Counter-Strike: Global Offensive út stýrikerfunum Microsoft Windows, Mac OS X, Xbox 360 og PlayStation 3.
Í dag var gerð stærsta uppfærsla á leiknum hingað til á beta útgáfunni og má lesa nánar um hana hér.
„Vel, en ég ætla skipta yfir þegar hann kemur út“ sagði íslenski Counter Strike:Source spilarinn Cast í samtali við eSports.is aðspurður um hvernig honum líkar beta útgáfan af leiknum og hvort hann ætlar að skipta alfarið yfir.
Hér að neðan er gameplay myndband af CS:GO, en þess ber að geta að leikurinn hefur breyst mikið síðan þetta myndband kom út: