Close Menu
    Nýjar fréttir

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Forsala á GTA VI fyrir PS5 og Xbox Series X/S hefst í næstu viku

    18.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Leikjarinn leggur Twitch á hilluna eftir 15 ár

    14.06.2026
    1 2 3 … 351 Next
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    esports.is
    • Forsíða
    • Tölvur og leikir
      • Íslenskt efni
      • Rafíþróttir
      • Mót framundan
      • Væntanlegt
      • Nintendo
      • PC leikir
      • Playstation
      • Xbox
    • Leikjarýni
      1. Leikjarýni
      Featured
      90

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      Chef-Jack12.08.2025
      Recent
      9.0

      Leikjarýni: Echoes of the End stendur undir væntingum

      12.08.2025
      7.0

      Leikjarýni: RC-leikurinn Recharge kemur á óvart

      07.08.2025
      5.0

      Leikjarýni: Tónlistin heillar, en leikurinn sjálfur nær ekki sömu hæðum – þarfnast enn talsverðrar yfirferðar

      30.06.2025
    • Auglýsa?
    • Um okkur
      • Hafðu samband
      • Auglýsa?
      • Fréttabréf
      • Um vefinn
      • Íslenskar Fb grúppur
    • Klönin
      • Klön yfirlit
      • Dusty
      • Oldies Samsteypan
    • is
      • is
      • en
    esports.is
    Forsíða»Rafíþróttir - Lan-, online mót»Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn setti nýjan gæðastaðal fyrir rafíþróttir á Skjálfta – Viðtal
    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal
    Rafíþróttir - Lan-, online mót

    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn setti nýjan gæðastaðal fyrir rafíþróttir á Skjálfta – Viðtal

    Chef-Jack22.10.2025Uppfært22.10.20254 mín lestur
    Deila
    Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal
    Dusty og SAGA áttust við í úrslitaleik Skjálfta 2025 þar sem Dusty tryggði sér titilinn Skjálftameistarar ársins.

    Helgina 26. til 28. september varð íþróttahúsið í Digranesi vettvangur stærsta rafíþróttaviðburðar ársins, Skjálfta 2025.

    Þar komu saman hundruð keppendur úr öllum áttum, tæknifólks og áhorfenda í þriggja daga leikveislu sem sameinaði keppni, samvinnu og hreina nördaorku undir einu þaki.

    Helgin var full af viðureignum, verðlaunum og gleði. Björn Gíslason hlaut Hvatningarverðlaun Rafíþróttasambands Íslands, Neisti frá Drangsnesi var valinn með bestu treyjurnar, Nikulás fékk verðlaun fyrir besta uppsetningu, B2B sigraði í Apex Legends, Juce Kid vann í Smash Bros. Ultimate, Athyr í Smash Bros. Melee og Alex í Guilty Gear Strive.

    Sýningarleikir Ljósleiðara- og KIA-deildarinnar á Skjálfta - Úrslit
    Jötunn fagnaði sigri í League of Legends á Skjálfta 2025.

    Meðal eftirminnilegustu atvika helgarinnar voru tveir sérstakir sýningarleikir. Í Counter Strike mættust fremstu lið Ljósleiðaradeildarinnar þar sem Dusty hafði betur, og í League of Legends tryggði Jötunn sér fyrsta sætið í KIA-deildinni.

    En það var úrslitaleikurinn í Counter Strike sem stóð upp úr. Þar leiddu Dusty og SAGA saman hesta sína í leik sem fyllti salinn af spennu og hávaða. Hver lota var barátta, hvert skot skapaði titring, og að lokum var það Dusty sem lyfti bikarnum sem Skjálftameistarar 2025.

    Ljósleiðarinn með burðarás netsins

    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal

    Til að slíkur viðburður geti orðið að veruleika þarf traust burðarvirki sem stenst álagið, og það var Ljósleiðarinn sem sá til þess að allt héldi. Fyrirtækið setti upp 240 einstaklingsbundnar 10 Gb tengingar, sem talið er Íslandsmet í tengingum af þessu tagi á einu LAN-móti.

    eSports.is forvitnaðist um tæknilega framkvæmd Skjálfta og fékk Ljósleiðarann, Rafíþróttasamband Íslands til að lýsa hvernig öllu var stýrt í einum hraðvirkasta og stöðugasta netkerfi sem sést hefur á íslensku LAN-móti.

    „Verkið var skipulagt í þaula og með okkar hæfasta fólk í hverju horni,“

    segir Maren Heiða Pétursdóttir, verkefnastjóri samskipta og viðburða hjá Ljósleiðaranum í samtali við esports.is.

    „Margra mánaða vinna liggur að baki, allt frá því í lok júní. Verkefnið snerti á öllum skipulagseiningum félagsins og án ótrúlegrar samvinnu hefði þetta verið mjög erfitt.“

    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal
    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal

    Aðspurð um framtíðarsýn Ljósleiðarans í rafíþróttum segir hún að lærdómurinn af Skjálfta muni nýtast áfram.

    „Þarfir rafíþróttafólks á netkerfum eru örlítið frábrugðnar annarri notkun. Við lærðum margt sem við tökum með okkur inn í framtíðina,“

    segir Maren.

    „Samstarfið við Rafíþróttasambandið var frábært, við öll með eitt markmið, að gera Skjálfta 2025 að ógleymanlegum viðburði.“

    Tæknin á bak við Skjálfta

    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal
    Bragi Reynisson, forstöðumaður tæknireksturs hjá Ljósleiðaranum

    Bragi Reynisson, forstöðumaður tæknireksturs hjá Ljósleiðaranum, útskýrir hvernig færanlega tengistöðin tryggði stöðugt samband.

    „Tengistöðin okkar var tengd í tvær aðskildar áttir til að tryggja bæði næg bandvídd og öryggi. Ef bilun kæmi upp eða strengur slitnaði, yrði Skjálfti aldrei sambandslaus.“

    Að hans sögn kom það flestum á óvart hversu lítið netið þurfti að leggja á sig.

    „Það var í raun aðeins brot af hraðanum sem nýttist. Verkefnið snerist því meira um hnökralausa upplifun, og það tókst með miklum sóma.“

    „Internetið er grunnurinn sem allt hitt byggist á“

    Stærsti rafíþróttaviðburður ársins, Ljósleiðarinn tryggði hraðvirkasta netið á Skjálfta - Viðtal
    Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands (lengst til hægri), við verðlaunaafhendingu þar sem B2B sigraði í Apex Legends mótinu á Skjálfta 2025.

    Jökull Jóhannsson, framkvæmdastjóri Rafíþróttasambands Íslands, segir í samtali við esports.is, að gæði netsins hafi ráðið úrslitum um upplifun keppenda.

    „Við horfum á þetta þannig að internetið er grunnurinn sem allt hitt byggist á. Við vildum að keppendur gætu einbeitt sér alfarið að leiknum, og það tókst.“

    Hann segir 240 einstaklingsbundnar 10 Gb tengingar hafa breytt leiknum.

    „Þetta var annar staðall en áður hefur sést. Algengt er að netið detti út í byrjun móts, en hér var allt á allt öðrum skala. Við fengum spurningar frá kröfuhörðustu úrvalsdeildarliðunum sem trúðu varla eigin augum.“

    Aðspurður hvaða leikur hafi mest krafist af bandvíddinni svarar Jökull ákveðið.

    „Counter Strike 2 er hvað kröfuhörðust í dag. Þar skiptir hvert sekúndubrot máli og netið verður að standast það.“

    Hann segir Ljósleiðarann hafa sett nýjan staðal með Skjálfta 2025.

    „Þetta verður viðmiðið sem framtíðarmót eru dæmd eftir. Við stefnum að því að endurtaka leikinn og ef allt gengur að óskum verður næsti Skjálfti enn stærri og fjölbreyttari.“

    Skjálfti 2025 sýndi að íslensk rafíþróttamenning er orðin sjálfstæð heild. Samvinna Ljósleiðarans, Rafíþróttasambandsins og keppenda skapaði viðburð sem sameinaði tækni, liðsheild og metnað í eina ógleymanlega helgi.

    Þegar síðasta lotan rann sitt skeið og salurinn féll í kyrrð var ljóst að Skjálfti hefur ekki aðeins snúið aftur, heldur fest sig í sessi sem stærsta LAN-mót landsins.

    Myndir: aðsendar

    Alex Örn Hrólfsson Aþena Ýr "Athyr" Ingimundardóttir B2B Dusty Jökull „Kaldi“ Jóhannsson Jötunn Kristján "Juce Kid" Brynjólfsson Ljósleiðarinn Neisti Nikulás "BIGMAYNE" Nikulásson Rafíþróttir SAGA Skjálfti
    Deila Facebook Twitter LinkedIn Bluesky Reddit Copy Link
    Chef-Jack

    Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]

    Tengdar færslur

    Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar

    23.06.2026

    Aðgengi að rafíþróttum í brennidepli

    16.06.2026

    Dusty tryggði sér Stórmeistaratitil Ljósleiðarans

    29.05.2026

    Finnsi rafíþróttamaður ársins

    27.05.2026
    Við mælum með

    Þorsteinn „TH0R“ Friðfinnsson mætir á PGL Astana

    04.04.2026

    Íslenskur Cobblemon server opnaður fyrir Minecraft aðdáendur

    28.03.2026

    Pixelwear.is tengir saman nörda- og leikjasamfélög landsins

    27.03.2026

    Íslendingurinn Torfi Frans: „Minecraft World er mikilvægt skref“

    22.03.2026
    1 2 3 … 10 Next
    Mest lesið
    • Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      Ljósleiðarinn áfram aðalstyrktaraðili Ljósleiðaradeildarinnar
      23.06.2026
    Leikjarýni í vinnslu

    12. ágúst 2025
    Nýjasta leikjarýnin komin út: Echoes of the End

    7. ágúst 2025
    Nýleg leikjarýni: Recharge.

    30. júní 2025
    Nýleg leikjarýni: The Book of Aaru.

    Fleiri leikjarýni hér.

    esports.is
    Facebook X (Twitter) YouTube Bluesky Discord Steam
    • Forsíða
    • Auglýsa
    • Tölvuleikir
    • Um vefinn

    Sláðu inn leitarorð hér að ofan og smelltu á Enter til að leita. Smelltu á Esc til að hætta við.