Hinn frægi Jake „orb“ Sklarew Starcraft 2 spilari hefur verið ansi harður á bakvið skjáinn og kallað mótspilara öllum illum nöfnum og meðal annars orðið „Nig***“.
Nú er svo komið að því að hann er að fá allt saman aftur í bakið á sér, en nú á dögunum var orb ráðinn sem caster hjá liðinu Evil Geniuses (EG) og í gær var síðan þráður stofnaður á reddit.com þar sem bent var á að orb væri ansi dónalegur við mótspilara og birtar voru meðfylgjandi myndir til staðfestingar og í beinu framhaldi var orb rekinn úr EG.
orb hefur gefið út tilkynningu sem hægt er að lesa hér, en þar afsakar hann hegðun sína.
Heimild: Íslenska StarCraft 2 samfélagið, reddit.com og teamliquid.net.