Nú á dögunum var fjallað um þegar að Counter Strike:Source (CSS) liðið sUpEr sEriOUs beið eftir einum mótherja í 40-50 mínútur á meðan hann installaði CSS.
Þessi frétt fékk athygli meðlima á íslensku facebook síðu CSS samfélagsins, en þar segir einn orðrétt:
„bíðið aðeins ætla að fá mér pizzu……. fer fótgangandi út í dóminos sækir pizzu borðar hana sem tekur 20 mín í viðbót…… 45 min síðar heyj vá strákar takk fyrir að bíða….. gerðist í alvörunni í 10 manna ekki clanscrimmi“.
Sá sem við var átt, svaraði strax:
„okei ég borðaði aldrei pizzuna áður en pugið byrjaði!“.
Hvernig sem þetta var, er enn óljóst, en engu að síður fyndið 🙂