Ubisoft hefur ákveðið að hætta alfarið við endurgerðina af Prince of Persia Sands of Time. Ákvörðunin er hluti af víðtækri endurskipulagningu innan Ubisoft sem hefur áhrif á fjölda verkefna, þar á meðal leiki sem aldrei höfðu verið kynntir opinberlega. Þetta markar skýra stefnubreytingu í þróunaráætlunum fyrirtækisins til skemmri tíma.
Fréttin var fyrst sögð af leikjafréttaritarann Jason Schreier, sem greindi frá því að Ubisoft hefði hætt við sex leiki, þar á meðal endurgerðina af Prince of Persia Sands of Time, fjóra ókynnta titla og einn farsímaleik.
BREAKING: Ubisoft is canceling the Prince of Persia: Sands of Time remake and 5 other games (4 unannounced, 1 mobile). The company says it is also delaying 7 games (including an unannounced project believed to be a Black Flag remake) as part of a larger restructuring.
— Jason Schreier (@jasonschreier.bsky.social) January 21, 2026 at 4:45 PM
Jafnframt hefur útgáfan frestað sjö öðrum verkefnum, þar á meðal ókynntu verkefni sem talið er tengjast endurgerð á Assassin’s Creed IV Black Flag.
Schreier tók jafnframt fram að orðrómur síðustu vikna um að leikurinn væri tilbúinn til útgáfu væri rangur. Ubisoft hafi verið óánægt með stöðu verkefnisins og því ákveðið að stöðva þróunina alfarið, þrátt fyrir að leikurinn hefði verið í vinnslu um árabil.
Sjá einnig: Prince of Persia-remake fimm árum á eftir áætlun
Prince of Persia: The Sands of Time Remake var kynntur árið 2020 sem endurgerð á hasarævintýrinu frá 2003. Þróunin hófst hjá Ubisoft Pune og Ubisoft Mumbai, áður en verkefnið var flutt til Ubisoft Montréal í von um að lyfta gæðum, en leikurinn fékk aldrei nýjan útgáfutíma.
Með þessari ákvörðun er ljóst að endurgerðin mun ekki líta dagsins ljós. Fyrir aðdáendur sem hafa fylgst með verkefninu frá upphafi markar þetta endanlegan endapunkt á langri og óvissri þróunarferli.
Engu að síður hafði verið unnin kynningarmyndbanda fyrir leikinn sem má sjá hér að neðan.
Mynd: ubisoft.com




