[show-logos orderby='none' category='styrktaradilar' activeurl='new' style='boxhighlight' interface='grid' tooltip='false' description='false' limit='3' filter='false' ]
Heim / Tölvuleikir / Vertu með í að móta kvennalandslið Íslands í Counter-Strike
Auglýsa á esports.is?

Vertu með í að móta kvennalandslið Íslands í Counter-Strike

Vilt þú taka þátt í að móta framtíð íslenska kvennalandsliðið í Counter-Strike?

Rafíþróttasamband Íslands (RÍSÍ) leitar að áhugasömu og ábyrgðarfullu fólki úr samfélaginu til að skipa sérstaka þriggja manna nefnd, sem mun velja næsta Counter-Strike-landslið Íslands.

Þetta er einstakt tækifæri fyrir þau sem hafa ástríðu fyrir leiknum og vilja hafa áhrif á rafíþróttir á Íslandi.

Hlutverk nefndarinnar:

  • Velja saman fullmótað landslið sem keppir fyrir hönd Íslands á alþjóðlegum vettvangi.
  • Rýna í reynslu, hæfni og hæfileika umsækjenda.
  • Velja þann einstakling sem mun leiða landsliðið áfram.

Hverjir geta boðið sig fram?

  • Allir sem hafa áhuga á rafíþróttum, sérstaklega Counter-Strike.
  • Einstaklingar með skýra sýn, heiðarleika og vilja til að stuðla að faglegri uppbyggingu innan greinarinnar.
  • Þetta er sjálfboðastarf, en mikilvægur þáttur í framtíð íslenskrar landsliðsstarfsemi.

Ferlið:

  • Þeir sem vilja bjóða sig fram senda inn stutta kynningu á sjálfum sér (hver þú ert og af hverju þú vilt taka þátt).
  • Counter-Strike-samfélagið kýs þrjá einstaklinga úr hópi frambjóðenda.

Senda inn framboð:

  • Nafn
  • Stutt kynning (100-300 orð)
  • Tengsl við rafíþróttir / CS ef við á

Framboð skulu send á [email protected]

Umsóknarfrestur: 18. apríl

Um Chef-Jack

Chef-Jack er menntaður matreiðslumaður sem hefur frá árinu 2008 haldið úti vefnum esports.is, þar sem hann birtir greinar og fréttir tengdar rafíþróttum og leikjamenningu, bæði á Íslandi og erlendis. Vefurinn hefur frá upphafi verið mikilvægur vettvangur fyrir upplýsingamiðlun og umræðu um þróun rafíþrótta og tölvuleikjamenningar. Hægt er að hafa samband við Chef-Jack á netfangið: [email protected]
x

Check Also

Kaldi snýr aftur í Hearthstone - Eftir tíu ára hlé - Jökull „Kaldi“ Jóhannsson

Kaldi snýr aftur í Hearthstone – Eftir tíu ára hlé

Jökull „Kaldi“ Jóhannsson, einn reyndasti ...